Pingdom Check

Flug, gisting og leiðsögn með bíl

Pakkaferðir til Nuuk á Grænlandi sem oft er nefnd litríkasta borg norðurskautsins.

Nuuk mætti kalla höfuðborg norðurheimskautsins þar sem náttúrufegurðin er engri lík.

Flogið er frá Keflavíkurflugvelli (KEF) til NUUK (GOH). Flugið tekur 3 klst. og 45 mín.

Ferðin inniheldur, flug, gistingu á Hans Egede með morgunverði og leiðsögn með bíl um höfuðborg Grænlands Nuuk. Ferðin tekur u.þ.b. 1 1/2 klst.

  • Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim!
  • Athugið að verð frá og sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni

Sjá ferðáætlun hér að neðan.

Innifalið í pakkanum

Flug Grænland

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 20 kg
Handfarangurstaska 6 kg
Sætaval
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting

Gisting í tveggja manna herbergi
Morgunverður innifalinn

Leiðsögn með bíl um höfuðborg Grænlands

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Leiðsögn með bíl um höfuðborg Grænalands

Leiðsögn með bíl um höfuðborg Grænalands
Dagur 1Velkomin til Nuuk

Flug frá Keflavík til NUUK.

Farþegar koma sér sjálfir til og frá flugvelli (leigubílar fyrir utan flugstöð)

Gisting: Hotel Hans Egede. Aqqusinersuaq Nuuk 3900, Greenland

Hotel Hans Egede er gott 4ja stjörnu hótel. Herbergin eru rúmgóð með sérbaðherbergi, morgunverður innifalinn alla daga.

Hotel Hans Egede er 5-hæða hótel, staðsett við aðalgötu borgarinnar með útsýni yfir fjörðinn og fjöllin sem gefur tilfinningu fyrir nálægð við náttúruna. Þar sem hótelið er staðsett í hjarta höfuðborgarinnar gefur dvölin þar góð tækifæri til að kynnast hinnu líflega bæjarlífi. Stutt er í allar verslanir og veitingastaði og einnig að gömlu höfninni. Á torginu fyrir framan Brugsen er venjulega sala á notuðum hlutum og eftir árstíðum er hægt að kaupa afurði sem náttúran biður upp á - allt frá steinbítshrognum á vorin til berja síðsumars. Á hótelinu eru veitingastaðir og bar. Gestir hafa einnig aðgang að líkamsræktaraðstöð hotelsins og það er ókeypis nettenging


Dagur 2 (þú getur lengt ferðina)

Viltu sjá sem mest af borginni án þess að eyða of miklum tíma?

Skoðunarferðin er daginn eftir komu til Grænlands.

Viltu sjá sem mest af borginni án þess að eyða of miklum tíma?

Skoðunarferðin er daginn eftir komu til Grænlands.

Skoðunarferð:

Leiðsögn með bíl um höfuðborg Grænlands. Lengd ferðar er 1 1/2 klst.

Mæting: HOTEL HANS EGEDE. Nonni Travel kemur til með að senda farþegum tölvupóst varðandi tímasetningu þar sem hún getur verið breytlileg eftir dögum.

Skoðunarferðin er daginn eftir komu til Grænlands.

Ferðalýsing:

Farþegar sóttir á 4x4 bíl á hótelið á degi eitt eða tvö. Fer eftir lengd dvalar.

Í þessari bílferð er meðal annars hægt að sjá sögulega þróun Nuuk. Þaðan sem bærinn byrjaði í nýlenduhöfninni til nútímabyggðarlags nútímans. Stoppað verður áá nokkrum af bestu ljósmyndastöðum bæjarins.

Ekið verður að "enda heimsins", útsýnisstað. Þar er meðal annars hægt að sjá Kook-eyjar og fjallið Kingigtorsuaq. Annar útsýnisstaður sem heimsóttir er, er norður af Nuuk, þar er hægt sjá hluta af næststærsta fjarðakerfi heims og einnig er Sermitsiaq fjallið skoðað. Að lokum er einnig möguleika á að koma við í stærstu minjagripaverslun borgarinnar.

Ef aðrar óskir eða staðir sem áhugi er fyrir að skoða í ferðinni þá er reynt að að koma því fyrir svo ferðin verði sérsniðin eftir óskum hvers og eins. Að lokum er akstur á hótel en einnig er í boði að velja hvar þessi ferð endar

Frjáls tími eftir ferðina. Það eru góðir verslunarmöguleikar skammt frá Katuaq.


Síðasti dagurinnHeimferðardagur eða frjáls dagur

Heimferðardagur eða frjáls dagur, fer eftir lengd ferðar

Heimferðardagur:

Morgunverður.

Frjáls dagur til að skoða sig um á eigin vegum fram að brottför

Útskráning af hóteli er fyrir kl. 10:00. Hægt að geyma farangur í hótelinu.

Farþegar koma sér sjálfir til og frá flugvelli.

Frjáls dagur

Morgunverður.

Frjáls dagur til að skoða sig um á eigin vegum.

Á sumrin og fram á haustið er hægt a taka þátt í skoðunarferðum, meðal annars er boðið upp á hvala- eða lundaskoðunarferðir, auk annarra bátsferða eins og til Qoorn

Nuuk er hið grænlenska heiti á höfuðstað Grænlands sem á dönsku nefnist Godthåb og var áður fyrr stundum nefndur Góðvon á íslensku.

Það var Hans Egede trúboðinn sem stofnaði Godthåb sem trúboðsstöð og verslunaraðsetur í umboði Danakonungs árið 1728. Hið opinbera nafn bæjarins, Nuuk, er frá því að Grænland öðlaðist heimastjórn árið 1979. Nuuk þýðir „tangi“ á grænlensku. Nuuk er hluti af sveitarfélaginu Sermersooq og íbúafjöldi er um 18.000 (2019).

Nuuk stendur við Davissund á suðvesturströnd Grænlands, á tanga á milli tveggja fjarað sem skerast djúpt inn í landið. Það má segja að bærinn skiptist í tvennt, annars vegar í gamla bæjarhluta sem nefndur er "Kolonihavnen" og eru þar aðallega byggingar frá 18. og 19. öld og hins vegar í nýrri hluta með nútímalegum fjölbylishúsum og arhítektur síðari hluta 20. aldar.

Í miðbænum eru hugguleg kaffihús og veitingastaðir, bíó, verslunarmistöð og hótel. Náttúrufegurðin er engu lík. Til að fá sem besta útsýni er mælt með að fara upp í útsýnisturninn í gömlu höfninni.

Gististaðir

fráISK 181.800 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu