Ef þú getur ekki nýtt þér flugmiða sem þú hefur keypt og þarft að afbóka, gætirðu átt rétt á endurgreiðslu. Rétturinn til endurgreiðslu fer eftir fargjaldareglum þess fargjalds sem miðinn er bókaður á en í sérstökum tilfellum gætu aðrar reglur átt við.
- Ef þú bókaðir flugið hjá okkur, t.d. í gegnum bókunarvélina á vefnum okkar eða hjá þjónustufulltrúa, biðjum við þig að fylla út eyðublaðið hér að neðan.
- Ef þú vilt breyta eða afbóka pakkaferð biðjum við þig að hafa samband við Icelandair VITA.
- Ef þú bókaðir flugið í gegnum þriðja aðila, t.d. söluaðila á netinu eða ferðaskrifstofu, þarftu að hafa samband við þau beint til að gera breytingar á bókuninni eða afbóka.