Pingdom Check

Matur um borð

Við bjóðum upp á úrval máltíða og ýmislegt gott til að borða í fluginu, meðal annars vegan og grænmetisrétti.

Nánari upplýsingar um máltíðir um borð:
Economy | Saga Premium | Hressing fyrir börn | Grænland og Færeyjar | Innanlandsflug

Matur og drykkur á Economy farrými

Farþegum stendur til boða að forpanta máltíð fyrir flug eða kaupa léttar veitingar af matseðlinum okkar um borð á meðan flugi stendur.

Skoðaðu úrvalið okkar um borð með því að flakka á milli flipana. Þú finnur nánari upplýsingar um innihald og ofnæmisvalda þegar þú smellir á Lesa nánar á hverju spjaldi.

Um máltíðir um borð

Þú finnur nánari upplýsingar um máltíðir hér fyrir neðan.

Vinsamlega athugaðu

Ef máltíð er pöntuð í gegnum þjónustuverið okkar bætist við aukagjald. 

Gosdrykkir og ávaxtasafar eru ókeypis í flugi milli Íslands og Norður-Ameríku (á ekki við smoothie og orkudrykk).

Athugaðu að ekki er hægt að greiða með reiðufé um borð. Við tökum vel á móti debet- og kreditkortum og Saga Club félagar geta keypt mat og drykk um borð með Vildarpunktum.