Pingdom Check
09/16/2025 | 11:09 AM

Kjarr - Ilmkerti til styrktar Vildarbarna

Við kynnum Kjarr, nýjan ilm úr smiðju Fischersund í samstarfi við Icelandair og Epal. Samstarfsverkefnið styður Vildarbörn , framtak Icelandair sem á sér langa sögu um að veita langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til ferðalaga.

Handgerð kerti

Takmarkað upplag er af kertinu sem vekur upp væran og róandi furuilm, innblásinn af hinu smágerða en sterka kjarri sem hjúfrar sig saman og vex þétt líkt og það sé að vernda sig gegn óblíðum og ófyrirsjáanlegum náttúruöflum.  

Umbúðir og kerti skarta teikningu eftir Ingibjörgu Birgisdóttur, liststjórnanda og einum stofnenda Fischersund. Teikningin fangar samstöðuna og skjólið sem þessar harðgerðu plöntur skapa. Ilmnótur eru meðal annars birki, fura, balsamþinur og bergamot. Hvert kerti er handgert á Íslandi úr hágæða ilmkjarnaolíum og endurunnu sojavaxi. 

Kertin fást nú í forsölu í vefverslun Epal

Ljóðið Kjarr

Með hverjum ilmi frá Fischersund fylgir tónlist, myndlist, og ljóð. Við mælum með að þú hallir þér aftur, kveikir á kertinu og lesir í gegnum þetta fallega ljóð um Kjarr:

Í skjólsælu mosarjóðri

runnar og ung barrtré

hönd í hönd, samanflækt

dansandi lauf birkis

vindar hvísla, nálægt en þó fjarri

hlýtt í miðjunni

Grenikönglar á víð og dreif

hvílast og bíða frjóvgunar

kalt súrefni fyllir heiðblámann

Blóðberg grætur daggardropum

furunálum kastað í varðeld

neistar, logar, reykur

Í stutta stund, allt er