Nýtt samstarf: Icelandair og Air China
Við hjá Icelandair erum ávallt að leita leiða til auka úrvalið okkar af ferðamöguleikum.
Að þessu sinni kynnum við nýjan samstarfssamning um sammerkt flug með Air China sem opnar fyrir nýjar tengingar og betra aðgengi að spennandi áfangastöðum.
Air China nýtt samstarfsflugfélag Icelandair
Icelandair og Air China hafa undirritað samstarfssamning um sammerkt flug. Samstarfið stóreflir tengingar milli Íslands og Kína.
Með því að sameina styrkleika leiðakerfa félaganna verður auðveldara fyrir viðskiptavini að ferðast til fleiri áfangastaða, á einum farmiða með farangurinn innritaðan alla leið á lokaáfangastað.
Air China var stofnað árið 1988 og er þjóðarflugfélag Kína með höfuðstöðvar í Peking. Flugfloti félagsins telur 972 flugvélar sem fljúga til fjölda áfangastaða.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Samstarfið við Air China er mikilvægt skref í áframhaldandi styrkingu leiðakerfis okkar og útvíkkun á neti samstarfsfélaga. Kína er einn af mikilvægustu flugmörkuðum heims og með samningnum getum við boðið viðskiptavinum okkar betri tengingar til fjölmargra áfangastaða þar á sama tíma og farþegar Air China fá greiðari aðgang að Íslandi.“
Qu Guangji, President of China National Aviation Holding Corporation Limited and Air China Limited:
“The Beijing–Reykjavik route, launched by Air China as schedule, is not only China's first, but also currently the only scheduled passenger route connecting East Asia and Southeast Asia directly with Iceland. The codeshare cooperation between Air China and Icelandair will provide passengers of both countries with more convenient travel options, further enhancing the connectivity between the two countries' aviation networks.”
---
Við hlökkum til að sjá þig um borð, og kynnast nýjum áfangastöðum sem þetta samstarfsflugfélag býður upp á.
Endilega skoðaðu vefsíðuna okkar og kynntu þér önnur samstarfsflugfélög og samstarfssamninga okkar.