Nýtt samstarf: Icelandair og Air India
Við hjá Icelandair erum ávallt að leita leiða til auka úrvalið okkar af ferðamöguleikum.
Að þessu sinni kynnum við nýjan samstarfssamning um sammerkt flug með Air India sem opnar fyrir nýjar tengingar og betra aðgengi að spennandi áfangastöðum.
Icelandair og Air India undirrita samstarfssamning
Icelandair hefur gert samstarfssamning við indverska flugfélagið Air India um sammerkt flug. Með samningnum munu opnast öflugar og þægilegar tengingar á milli Íslands og Indlands um sameiginlega áfangastaði félaganna í Evrópu.
Þannig verður hægt að ferðast í einni bókun frá Íslandi til Nýju Delí með tengingu í Amsterdam, París, Kaupmannahöfn, Frankfurt eða London Heathrow og til Mumbai með tengingu í Frankfurt eða London Heathrow.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair og Campbell Wilson, forstjóri Air India undirrituðu samninginn á aðalfundi IATA, Alþjóðasamtaka flugfélaga, sem fram fer í Nýju Delí.
Gert er ráð fyrir að samningurinn taki gildi á næstu vikum þegar samþykki opinberra aðila liggur fyrir og þá munu viðskiptavinir geta bókað tengiflug á milli leiðakerfa flugfélaganna í einum miða með farangurinn innritaðan alla leið á lokaáfangastað.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Þessi nýi samstarfssamningur við Air India markar mikilvæg tímamót og opnar góðar tengingar úr leiðakerfi okkar í Norður-Ameríku og Evrópu til og frá Indlandi. Þannig verður auðveldara fyrir viðskiptavini Icelandair að ferðast til Indlands og sömuleiðis viðskiptavini Air India að ferðast til Íslands. Við höfum lagt áherslu á að efla alþjóðaleiðakerfið okkar með samstarfssamningum við flugfélög sem leggja áherslu á góða þjónustu og spennandi ferðamöguleika og það gerir Air India svo sannarlega.“
Campbell Wilson, forstjóri Air India:
„Það er mjög ánægjulegt að hefja samstarf við Icelandair og bjóða viðskiptavinum okkar upp á þægilegar leiðir til þess að upplifa náttúru og menningu Íslands. Einnig erum við spennt fyrir því að kynna viðskiptavini Icelandair fyrir spennandi áfangastöðum á Indlandi. Samningurinn endurspeglar markmið okkar um að efla alþjóðlegt leiðakerfi okkar og tengingar á milli Indlands og vaxandi ferðamarkaða eins og Íslands.“
Nánar um samstarfsverkefni okkar
Við erum að efla markaðssókn okkar og styrkja leiðakerfi Icelandair með aukinni áherslu á samstarf við önnur flugfélög. Skoðaðu síðuna um samstarfsflugfélög til að kynna þér nánar sammerkt flug og samstarfsaðila.