Pingdom Check

Tilboð til sex skemmtilegra áfangastaða

Icelandair og Arion bjóða Saga Club félögum sem safna Vildarpunktum með kreditkorti frá Arion 30% afslátt af Economy Standard og Saga Premium fargjöldum til sex skemmtilegra áfangastaða með afsláttakóðanum: ARION, sama hvort greitt sé með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum.

Til að virkja afsláttinn þarf að nota afsláttarkóðann: ARION í bókunarvél Icelandair, hér að neðan eða á forsíðu Icelandair.

Þær borgir sem í boði eru: Amsterdam, Boston, Edinborg, Færeyjar, Nice og New York (JFK).

Afsláttur: 30% afsláttur af Economy Standard og Saga Premium fargjöldum þegar bókað er báðar leiðir með kóðanum.

Bókunartímabil: 28. – 29. ágúst.

Ferðatímabilið er: 15. september – 31. október fyrir Amsterdam, Boston, Edinborg og New York (JFK). En er til 26. október fyrir Færeyjar og 23. október fyrir Nice.

Afslátturinn á aðeins við um fargjöld til þeirra áfangastaða, á þeim farrýmum og á því tímabili sem talið er upp hér að ofan. Afslátturinn er ekki af heildarverði og gildir ekki af sköttum, þjónustu eða öðrum gjöldum. Bóka þarf báðar leiðir til að nota afsláttarkóða. Kóðinn gildir í takmarkaðan tíma, er háður framboði og ekki víst að hægt sé að nýta sér hann á öll flug innan ferðatímabilsins þar sem sætafjöldi er takmarkaður. Þú finnur gildistíma kóðans hér að ofan. Frekari upplýsingar er að finna í skilmálum afsláttarkóða: https://www.icelandair.com/is-is/adstod/skilmalar-og-skilyrdi/skilmalar-afslattarkoda/

Vildarpunktar og Fríðindastig – hver er munurinn?

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Um Vildarpunkta

Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaup vörur og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum um allan heim.

Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíl, gjafakort og margt fleira.

Um Fríðindastig

Alltaf þegar Saga Club félagar safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.

Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.