Pingdom Check

HönnunarMars 2026 fer fram dagana 6.–10. maí.

Stærsta hönnunarhátíð Íslands, HönnunarMars, stendur yfir í fimm daga í maí. Hún fer fram á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, sem og hinum ýmsu hverfum í Reykjavík.

Icelandair er stoltur styrktaraðili hátíðarinnar og það gleður okkur að geta lagt okkar af mörkum og styðja við íslenskt hæfileikafólk í skapandi greinum.

Á dagskrá HönnunarMars á hverju ári er yfir 100 sýningar, 200 viðburðir og 400 þátttakendur. Hátíðin byrjar á ráðstefnunni DesignTalks sem fer fram þann 6. maí í Hörpu og sýningarnar opna flestar dagana á eftir (sumar fyrr).

Nánar um sköpunarkraftinn á Íslandi og dagskránna fyrir HönnunarMars 2026 er að finna á vefsíðu HönnunarMars.

Sköpunargleðinni fagnað

Nú fer HönnunarMars fram í 17. skipti og yfirþema er Tengingar. Í heimi sem einkennist bæði af ofurtengingu og aftengingu beinir hátíðin sjónum að grunnþörf manneskjunnar fyrir tengsl.

Sýningarnar og viðburðirnir sýna breiddina sem má finna í íslenskri hönnun, í arkítektúr, keramik, tísku, skartgripahönnun, húsgagnasmíði, innanhússhönnun, textíl, grafískri hönnun, iðnhönnun, margmiðlun, sem og á ótalmörgum öðrum sviðum.

Að sögn Þóreyjar Einarsdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, er HönnunarMars fyrirboði bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Sem fyrr leggur hátíðin áherslu á að veita innblástur, ásamt því að vekja athygli á því kraftmikla hönnunarsamfélagi sem hér býr og deila gleðinni með heiminum.

DesignTalks

Samhliða HönnunarMars fer fram DesignTalks ráðstefnan þar sem leiðandi raddir úr alþjóðlegum og íslenskum hönnunarheimi koma saman og ræða málin. Pallborðsumræður fara fram 6. maí í Silfurbergi í Hörpu.

Hönnuðir, arkitektar og skapandi hugsuðir þenja mörk hins mögulega með spennandi sýningum, viðburðum, vinnustofum, leiðsögnum og opnunum um allan bæ á HönnunarMars.

Leikur að efnum, samspil náttúru við tækni, nýting annars flokks hráefna og nýjar skapandi lausnir fyrir samfélagið er meðal þess sem lítur dagsins ljós.

Icelandair og umhverfið

Endurnýting og sjálfbærni er mikilvægur þáttur í daglegri starfsemi Icelandair. Okkur þykir dýrmætt að eldri einkennisfatnaður rati rétta leið og að honum verði komið í uppbyggilegan endurvinnslufarveg í stað þess að verða að textílúrgangi.

Við erum alltaf að leita leiða til þess að auka sjálfbærni í starfseminni og tökum virkan þátt í að stuðla að aukinni nýtingu þeirra hráefna sem falla til.

,

Kynnið ykkur fyrri samstarfsverkefni okkar á HönnunarMars síðustu ára.

Með því að breyta úrgangi í hluti sem hægt er að nota að nýju erum við að minnka magn sem endar í urðun eða er flutt til útlanda til endurvinnslu.

Þessi nýting er ein leið til að vinna að grænni framtíð, hringrás efnisnotkunar og breiða út hinn sanna íslenska anda um heiminn.

,

Sýningin Skrúði var annað samstarfsverkefni Stúdíó Fléttu og Icelandair sem kannar samband endurnýtingar og sjálfbærni í hönnun. Í þessu verkefni fór gamli einkennisfatnaðurinn í nýtt ferðalag.

Birta og Hrefna hjá Stúdíó Fléttu prófuðu nýjar aðferðir með því að klippa, sauma og umbreyta fatnaðinum í skrautlegt púðasafn sem sækir innblástur í ríkulega sögu flugsins.

Eldri einkennisfatnaður Icelandair samanstendur af alls konar efnum sem Birta og Hrefna nýttu í verkefnið – allt frá hnöppum og höttum, pífum og sylgjum til klúta og kraga. Fjölmargar flíkur voru nýttar í verkefnið og ekkert varð afgangs. Rennilásar, beltissylgjur, leðurólar, efnisbútar, flugmannaborðar, der, skyrtukragar, pífur og fjölmargt annað var endurnýtt til að skapa eitthvað alveg nýtt. Fatnaðurinn fékk framhaldslíf og heldur ferðalaginu áfram.

,

Sýningin Snúningur var fyrsta samstarfsverkefni Icelandair og Stúdíó Fléttu og kannaði hlutverk endurnýtingar í sjálfbærri hönnun.

Við tókum í notkun nýjan einkennisfatnað árið 2023, sem þýddi að eldri fatnaður var lagður til hliðar. Í stað þess að farga honum unnum við með Stúdíó Fléttu til að taka á honum snúning og finna leið til að halda ferðalaginu áfram.

Í þessu verkefni nýttu hönnuðirnir Birta og Hrefna þann fjölbreytta efnivið sem leyndist í gamla einkennisfatnaðinum – allt frá smellum og höttum, pífum og sylgjum til hálsklúta og kraga. Þær nálguðust verkefnið á skapandi hátt og veltu fyrir sér spurningunni: Er hægt að búa til töskur úr einkennisfatnaði?

,

Á sýningunni Af tösku ertu kominn mátti sjá hönnun sem leggur áherslu á endurnýtingu og sjálfbærni. Sýningin var hluti af HönnunarMars 2023 og þar mátti finna lausn við þeirri þraut að gera sófa úr 625 gölluðum fartölvutöskum. Sýningin var afrakstur samstarfs Rebekku Ashley og Icelandair.

Rebekka er vöruhönnuður sem leggur upp með umhverfisvitund, sjálfbærni og endurnýtingu í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Á sýningunni mátti sjá hönnunarferlið á bak við sófann Lög, til dæmis hvernig hönnuðurinn sótti innblástur í fjallalandslag.

,

Íslenska fyrirtækið Plastplan sérhæfir sig í að nýta plastúrgang frá fyrirtækjum og breyta í nytjahluti. Markmið þeirra er að vinna að sjálfbærni og hringrás efnisnotkunar og finna notagildi á óvæntum stöðum.

Við kynntumst Plastplan árið 2021 þegar við unnum að heimildarmynd fyrir HönnunarMars. Björn Steinar Blumenstein, einn stofnenda fyrirtækisins, sýndi okkur hvernig þeir nýta plastúrgang og nota hugarflugið í samspili við tækni til þess að framleiða hluti sem eru ekki bara fyrir augað heldur hafa líka notagildi. Við urðum svo hrifin af þeirra vinnu að við ákváðum að fara í samstarf við þau og hófum leit að réttu verkefni.

,

Horfðu á myndbandið til að vita meira um hugvit og sköpunargáfu á Íslandi, og hvernig landið okkar hefur áhrif á vöruþróun og vinnu íslenskra hönnuða.