Pingdom Check

Í takmarkaðan tíma

Icelandair Saga Club félagar safna í takmarkaðan tíma tvöföldum Vildarpunktum þegar bókað er flug með JetBlue í gegnum vefsíðu Icelandair.

Þú færð tvöfalt magn punkta ef þú bókar á tímabilinu 21. júní til 5. júlí, í flug á árinu 2025.

Athugið að félagar fá ekki tvöfalt magn Fríðindastiga með tilboðinu.

Fjöldi Vildarpunkta & Fríðindastiga hjá JetBlue

Icelandair Saga Club og True Blue eru í samstarfi sem gerir Saga Club félögum kleift að bóka flug með JetBlue í gegnum Icelandair bókunarvélina.

Félagar eru þá með einn miða fyrir allt ferðalagið í heild sinni, og safna bæði Vildarpunktum og Fríðindastigum (sama magni af hvoru tveggja) í hvert sinn sem flogið er með JetBlue. Saga Silver félagar fá 10% fleiri Fríðindastig og Saga Gold félagar fá 20% fleiri.

Hvernig nota ég Vildarpunktana mína?

Saga Club félagar geta notað punkta hjá Icelandair til þess að greiða fyrir flug, og einnig hjá fjölda af samstarfsaðilum um heim allan.

Fyrir utan að geta notað punkta fyrir flug og pakkaferðir þá er einnig hægt að nota þá fyrir hótelbókanir, bílaleigubíla, ferðir frá flugvellinum, gjafakort, gjafabréf, fyrir veitingar um borð og fleira.

JetBlue-Icelandair

Samkomulag okkar við JetBlue veitir viðskiptavinum aðgang að leiðakerfi flugfélagsins í Norður-Ameríku frá New York, Boston og Orlando. Einnig má nefna að félagar í Saga Club og TrueBlue geta safnað punktum með vildarklúbbum beggja flugfélaga.