Pingdom Check

Fimm frábærir áfangastaðir á tilboði!

Icelandair og Íslandsbanki bjóða Saga Club félögum sem safna Vildarpunktum með kreditkorti frá Íslandsbanka 30% afslátt af Economy Standard og Saga Premium fargjöldum til fimm frábærra áfangastaða með afsláttarkóðanum: ISLANDSBANKI, sama hvort greitt sé með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum.

Bókunartímabil: 25. – 26. mars. .

Ferðatímabilið: 13. apríl – 15. júní.

Þeir áfangastaðir sem í boði eru: Frankfurt, Færeyjar, Glasgow, Orlando & Raleigh-Durham.

Til að virkja afsláttinn þarf að nota afsláttarkóðann: ISLANDSBANKI í bókunarvél Icelandair, hér að neðan eða á forsíðu Icelandair. Ekki er veittur afsláttur af sköttum eða gjöldum og skal ferð hefjast á Íslandi svo að afsláttarkóðinn virki. Athugið að afsláttur er háður sætaframboði og ekki hægt að tryggja að hann gildi á allar dagsetningar.

Hægt er að greiða með punktum eða öðrum greiðsluleiðum. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni. Félagar safna einnig punktum við að nota punkta sem greiðslu. Til þess að safna punktum fyrir flugið er mikilvægt að muna eftir að setja inn Saga Club númer í bókun.

Vildarpunktar og Fríðindastig – hver er munurinn?

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Um Vildarpunkta

Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaup vörur og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum um allan heim.

Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíl, gjafakort og margt fleira.

Um Fríðindastig

Alltaf þegar Saga Club félagar safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.

Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.