Kaupmannahöfn er ótrúlega heillandi borg sem býður upp á svo margt. Frá og með 13. nóvember er borgin komin í jólabúning og því einstaklega gaman að heimsækja hana og upplifa aðventunina.
Aðventan er tími töfrandi ævintýra í Tívolí. Garðurinn fyllist af glitrandi jólaljósum og fallega skreyttum jólahúsum, auk þess sem tónlist og sölubásar setja skemmtilegan svip á stemninguna.
Til að heimsækja jólamarkaðinn í Tívolí þarf að greiða aðgangseyri að garðinum. Í bókunarferlinu er hægt að bæta aðgangsmiða við. Jólamarkaðurinn í Tívolí byrjar 13. nóvember.
Einnig er jólamarkaðir í hinum ýms hverfum Kaupmannahafnar eins og Nytorv. Þar erH.C. Andersenjólamarkaður og einnig á Kongens Nytorv og Hojbro Plads
Í boði er pakkaferð með flug og gistingu og hægt er að bæta við aðgangsmiða í Tívolí í bókunarferlinu.
Aðgöngumiðinn gildir hvaða dag sem er í ferðinni, þó svo það komi fram tiltekinn dagur á lýsingunni á miðanum. Athugið: Tivoli er lokað 24.desember.
Aðgöngumiðinn í Tivolí:
- Veitir ekki aðgang að ferðum Tívolísins
- Verður sendur rafrænt á það netfang sem gefið var upp við bókun
- Gildir hvaða dag sem er í ferðinni sem er bókuð þó svo það komi fram tiltekinn dagur á lýsingunni á miðanum.
- Ekki er unnt að endurgreiða eða breyta miðanum í Tivoli
- Tivolí er lokað 24 desember
- Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim
- Athugið að verð frá og sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.