Flogið er til Rómar í beinu flugi Icelandair kl. 07:50 að morgni og lent á Leonardo da Vinci International Airport í Róm. Þar bíður rúta eftir hópnum og ekið er á hótel þar sem gist er í tvær nætur.
Miðbæjarrölt - Hjarta Rómar.
erðin hentar einstaklega vel til að kynnast borginni. Við skoðum stórbrotna og hrífandi staði og fræðumst um sögu þeirra og uppruna. Meðal staða sem við heimsækjum eru: Spænsku tröppurnar, Trevi gosbrunnurinn, Pantheon hofið (að utan) og Navona torgið
Ferðin endar á Campo de' Fiori torginu, þar sem hægt er að njóta fjölbreyttra veitingastaða og líflegs mannlífs.Ferðin tekur um það bil 3 klukkustundir
Lagt af stað í siglinguna. Ekið af stað frá hótelinu í Róm rétt fyrir hádegi og ekið til Civitvecchia þar sem Odyssey of the Seas liggur við bryggju og lagt er af stað frá landi kl. 17:00. Gaman er að skoða sig um á skipinu fram að brottför, um kvöldið er síðan borinn fram dásamlegur kvöldverður og tilvalið að njóta skemmtananna sem eru í boði fram eftir kvöldi.
Boðið er upp á kynnisferð um skipið með fararstjóra þar sem farið er yfir hvað er í boði um borð, síðan er tilvalið að leggjast á sólbekk við sundlaugina eða setjast á einn af fjölmörgu börum um borð og smakka hina litskrúðugu og ljúffengu kokteila sem boðið er upp á eða fara í búðir, á málverkauppboð, eða jafnvel matreiðslunámskeið, danskennslu eða sækja fyrirlestur. Matur og drykkur er í boði allan daginn, svo bíða 3ja rétta kvöldverðir og glæsilegar sýningar á kvöldin.
Santorini er ein þekktasta og fallegasta eyjan í Grikklandi. Útsýni er ægifagurt yfir gíginn, eyjarnar og hafið enda hafa margir listamenn fengið innblástur á staðnum og sest þar að. Fjöldi verslana með fallega listmuni og handverk er að finna á eyjunni og fer enginn þaðan án þess að taka með fallegan listmun eða minjagrip. Ómissandi er að setjast á veitingastað með fallegu útsýni og njóta.
Kusadasi er fallegur strandbær á vesturströnd Tyrklands. Þaðan er leiðin greið til hinnar fornu borgar Efesus, sem byggðist á elleftu öld fyrir Krist. Seinna gerðu Rómverjar borgina ódauðlega. Í dag er Efesus ein merkasta forna borg í heimi þar sem rómverskum byggingum hefur verið haldið við og þær endurbyggðar í sinni upprunalegu mynd. Skammt frá Efesus er einnig kapella kennd við hina Heilögu Guðsmóður.
Mykonos er ómótstæðileg og ein frægasta gríska eyjan. Hvít hús, dimmblátt hafið, þröngar götur og frábærar strendur. Á Mykonos er sagt að guðinn Apollo hafi fæðst.
Heill dagur til að njóta lífsins um borð í skipinu, sem nú siglir til Napolí á Ítalíu.
Napolí er höfuðborg Campania-héraðs við Napólíflóa. Gamli hluti borgarinnar, sem stofnaður var á bronsöld, er á heimsminjaskrá UNESCO og er ríkur af glæsilegum byggingum, áhugaverðum söfnum og fallegum torgum. Fallegu bæirnir Amalfi, Sorrento og Positano eru einnig í nálægð við Napolí sem gaman er að heimsækja.
Skipið leggst við bryggju um kl. 05:00 að morgni. Eftir morgunverð er farið frá borði og í rútu sem bíður hópsins og þaðan er ekið út á flugvöll og flogið heim til Íslands í beinu flugi Icelandair. Áætlað flug er kl. 15:55 frá Róm og lending í Keflavík áætluð kl.18:45