Pingdom Check

Almyrkvi á Suður Spáni - Estepona og nágrenni

Upplifðu almyrkva á sólu á Suður Spáni - Estepona og nágrenni

Einstök upplifun undir spænskum himni 

29.júlí -3.ágúst.  

Almyrkvi á sólu er einstök upplifun. Mánudaginn 2. ágúst 2027 verður almyrkvi yfir Suður Spáni, Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Í Egyptalandi varir almyrkvinn lengst, í um 6 mínútur og 23 sekúndur og er það lengsti almyrkvi sem verður það sem eftir lifir þessarar aldar. Á Íslandi verður aðeins lítilsháttar deildarmyrkvi og því er sannarlega þess virði að ferðast á almyrkvaslóð.

Tarifa á Suður Spáni er sérstaklega áhugaverður staður til að upplifa almyrkvann, þar sem bærinn liggur mjög sunnarlega, við Gíbraltarsund og nærri miðlínu almyrkvans. Þar verður hægt að sjá almyrkvann við einstakar aðstæður, með útsýni yfir sundið og Afríkuströndina í bakgrunni. Af þeim sökum verður ferðinni sérstaklega hagað þannig að hópurinn haldi til Tarifa eða í næsta nágrenni á sjálfan myrkvadaginn og komi sér fyrir á besta mögulega útsýnisstað, með tilliti til veðurs og aðstæðna þegar nær dregur. 

Í Tarifa hefst sólmyrkvinn kl. 09:40 að morgni 2. ágúst. Almyrkvinn hefst rúmri klukkustund síðar, kl. 10:45 og varir í rúmlega 4 mínútur og 30 sekúndur, til 10:49. Sólmyrkvanum lýkur svo kl. 12:00 og verður þá fagnað vel.  

Flogið verður með Icelandair til Málaga og þaðan ekið suður til fallega bæjarins Estepona sem er fallegur strandbær ekki langt frá Marbella og El Paraiso Alto sem er rólegt svæði upp í  hæðunum mitt á milli Estepona og Marbella. 

Úrval af gistingu er í boði bæði í Estepona og El Alto Paraiso við Benahavín. 

Fyrir almyrkvann sjálfann verður valinn verður sérstakur staður nær Tarifa svæðinu,  þar sem hópurinn fylgist saman með þessum einstaka viðburði. Notaðir verða sérstakir sólarsjónaukar til að auka enn á upplifunina og allir farþegar fá sólmyrkvagleraugu auk sólarsíu fyrir snjallsíma. Með í för verða Sævar Helgi Bragason (Stjörnu Sævar) og Gísli Már Árnason hjá Iceland at Night. Báðir hafa mikla reynslu af stjörnuskoðun og hafa upplifað almyrkva á sólu áður. 

Hægt er að velja brottfarir þann  28., 29. eða 31. júlí og heimflug 3., 4. eða 7. ágúst, eftir því hvaða ferðatilhögun hentar hverjum og einum best.

Innifalið:

  • Flug fram og til baka Keflavík–Málaga
  • Rútuferðir milli Málaga-flugvallar og Estepona og nágrenni
  • Fræðsla með Sævari Helga Bragasyni og Gísla Má Árnasyni
  • Skipulögð ferð á útsýnisstað vegna almyrkvans
  • Sólmyrkvagleraugu
  • Sólarsía fyrir snjallsíma

ATh: Hægt er að  dvelja allan tímann í Estepona og nágrenni og njóta þess sem svæðið og nágrennið hefur upp á að bjóða. Einnig er hægt að skipta dvölinni á milli tveggja áfangastaða, til dæmis með því að hefja ferðina þar og færa sig síðan yfir í aðra strandbæi t.d. Malaga, Torremolinos, Benalmadena, Fuengirola og Marbella 

Þeir sem kjósa að skipta dvölinni upp á milli tveggja áfangastaða eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við söluskrifstofu Icelandair VITA, þar sem starfsfólk aðstoðar við að finna þá ferðatilhögun sem hentar best.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum, háð framboði

Gisting

Gisting

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Gististaðir

fráISK 294.600 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu