Almyrkvi á sólu er einstök upplifun. Mánudaginn 2. ágúst 2027 verður almyrkvi yfir Suður Spáni, Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Í Egyptalandi varir almyrkvinn lengst, í um 6 mínútur og 23 sekúndur og er það lengsti almyrkvi sem verður það sem eftir lifir þessarar aldar. Á Íslandi verður aðeins lítilsháttar deildarmyrkvi og því er sannarlega þess virði að ferðast á almyrkvaslóð.
Tarifa á Suður Spáni er sérstaklega áhugaverður staður til að upplifa almyrkvann, þar sem bærinn liggur mjög sunnarlega, við Gíbraltarsund og nærri miðlínu almyrkvans. Þar verður hægt að sjá almyrkvann við einstakar aðstæður, með útsýni yfir sundið og Afríkuströndina í bakgrunni. Af þeim sökum verður ferðinni sérstaklega hagað þannig að hópurinn haldi til Tarifa eða í næsta nágrenni á sjálfan myrkvadaginn og komi sér fyrir á besta mögulega útsýnisstað, með tilliti til veðurs og aðstæðna þegar nær dregur.
Í Tarifa hefst sólmyrkvinn kl. 09:40 að morgni 2. ágúst. Almyrkvinn hefst rúmri klukkustund síðar, kl. 10:45 og varir í rúmlega 4 mínútur og 30 sekúndur, til 10:49. Sólmyrkvanum lýkur svo kl. 12:00 og verður þá fagnað vel.
Flogið verður með Icelandair til Málaga og þaðan ekið suður til La Línea de la Concepción, við Gíbraltarsund. La Línea liggur við landamæri Gíbraltar og er jafnframt vel staðsett fyrir ferð okkar til að sjá almyrkvann.
Gist verður á Ohtels Campo de Gibraltar sem er fjögurra stjörnu hótel í La Línea de la Concepción, á frábærum stað skammt frá landamærunum við Gíbraltar. Hálft fæði er innifalið (morgunverður og kvöldverður).
Með í för verða Sævar Helgi Bragason (Stjörnu Sævar) og Gísli Már Árnason hjá Iceland at Night. Báðir hafa mikla reynslu af stjörnuskoðun og hafa upplifað almyrkva á sólu áður. Þeir munu ekki aðeins standa fyrir fræðslu um almyrkvann og myndatökur, heldur líka sólskoðun á daginn og stjörnuskoðun á kvöldin dagana fyrir 2. ágúst.
Valinn verður sérstakur staður á svæðinu þar sem hópurinn fylgist saman með þessum einstaka viðburði. Notaðir verða sérstakir sólarsjónaukar til að auka enn á upplifunina og allir farþegar fá sólmyrkvagleraugu auk sólarsíu fyrir snjallsíma.
Ferðin er dagana 29. júlí til 3. ágúst og fylgir henni skipulögð dagskrá, en jafnframt er boðið upp á fleiri flugdaga fyrir þá sem vilja lengja dvölina. Hægt er að velja brottfarir þann 28., 29. eða 31. júlí og heimflug 3., 4. eða 7. ágúst, eftir því hvaða ferðatilhögun hentar hverjum og einum best.
ATh: Hægt er að dvelja allan tímann í La Línea og njóta þess sem svæðið og nágrennið hefur upp á að bjóða. Einnig er hægt að skipta dvölinni á milli tveggja áfangastaða, til dæmis með því að hefja ferðina í La Línea og færa sig síðan yfir á Costa del Sol (Malaga, Torremolinos, Benalmadena, Fuengirola, Marbella og Estepona).
Þeir sem kjósa að skipta dvölinni upp á milli tveggja áfangastaða eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við söluskrifstofu Icelandair VITA, þar sem starfsfólk aðstoðar við að finna þá ferðatilhögun sem hentar best.