Andorra
Paradís í Pýreneafjöllunum
Andorra er lítið fjallaríki í hjarta Pýreneafjallanna, á milli Spánar og Frakklands. Stórbrotin fjallasýn, góð skíðasvæði og notalegir fjallabæir gera Andorra að spennandi áfangastað fyrir skíðafólk, en landið hefur jafnframt upp á margt að bjóða fyrir þá sem vilja njóta fjallanna án þess að vera á skíðum.
Skíðabrekkurnar eru eitt helsta aðdráttarafl Andorra. Skíðasvæðin Grandvalira, Pal Arinsal og Ordino Arcalís tilheyra öll Grandvalira Resorts og saman bjóða þau upp á meira en 300 km af skíðaleiðum. Andorra skíðapassi veitir aðgang að öllum þremur svæðunum og því eru möguleikarnir fjölbreyttir, hvort sem um er að ræða byrjendur eða vana skíðamenn.
Grandvalira er stærsta skíðasvæðið í Pýreneafjöllunum með um 215 km af skíðaleiðum. Svæðið skiptist í sjö samtengda hluta: Encamp, Canillo, El Tarter, Soldeu, Peretol, Grau Roig og Pas de la Casa. Hægt er að ferðast á skíðum og með lyftum á milli svæðanna. Brekkurnar eru fjölbreyttar og henta skíðafólki á mismunandi getustigi.
Soldeu og El Tarter eru meðal vinsælustu svæða Grandvalira fyrir skíðafrí. Þar er auðvelt að komast inn á skíðasvæðið og þaðan opnast leiðir áfram um Grandvalira. Á svæðinu er góð þjónusta fyrir skíðafólk, meðal annars skíðaleiga, skíðaskólar, veitingastaðir og ýmis afþreying. Fyrir þá sem vilja meira en hefðbundin skíði eru einnig snjóbrettagarðar, freeride-svæði, fjallaskíðaleiðir og ýmis konar vetrarafþreying.
Skíðatímabilið hefst að jafnaði í desember og stendur fram í apríl og sums staðar lengur þegar snjóalög leyfa. Skíðasvæðin eru hátt yfir sjávarmáli og öflug snjóframleiðsla er til staðar á stórum hluta svæðanna, sem hjálpar til við að tryggja góðar aðstæður yfir vetrartímann.
Það er þó fleira en skíðin sem gerir Andorra að skemmtilegum vetraráfangastað. Fjallabæirnir bjóða upp á veitingastaði, bari og après-ski og í Andorra la Vella og Escaldes-Engordany er mikið úrval verslana. Þar má því auðveldlega blanda saman skíðadögum, góðum mat, verslunarferðum og afslöppun.
Þegar snjórinn víkur á vorin tekur allt annað landslag við. Andorra er þá frábær áfangastaður fyrir gönguferðir og aðra útivist í fjöllunum. Fjöldi merktra gönguleiða liggur um dali, skóga og fjalllendi og meðal fallegra náttúrusvæða eru Sorteny-dalurinn, Comapedrosa-náttúrugarðurinn, Incles-dalurinn og Madriu-Perafita-Claror-dalurinn. Vor, sumar og haust henta því vel þeim sem vilja njóta fersks fjallalofts, útivistar og stórbrotinnar náttúru Pýreneafjallanna.
Það má því segja að Andorra sé áfangastaður sem hægt er að njóta allt árið.
Beint flug til Barcelona.
Ekki er boðið upp á fararstjórn á svæðinu en hægt er að hafa samband við Icelandair VITA ef eitthvað kemur upp á.
Hægt er að sérpanta akstur til og frá flugvelli, hafa þarf samband við Icelandair VITA.
Athugið að flutningur á skíðabúnaði er ekki innifalinn í verði og þarf að bæta honum við gegn aukagjaldi fyrir þau sem þess óska. Hægt er að bæta við búnaði, annaðhvort við bókun eða síðar.