Pingdom Check

Antalya

Lúxus við Miðjarðarhafið

28. okt - 10. nóvember 2026 - 13 nætur 

Antalya

Við Miðjarðarhafið er að finna þessa mögnuðu borg með sínu fjölskrúðuga mannlífi. Höfn borgarinnar er afar glæsileg og þá er Kaleici, gamli bærinn í borginni, einstakur. Gömul timburhús í þröngum götum sem eru umkringd steinhlöðnum múr frá fornöldum einkenna bæinn. Við höfnina gnæfa tveir turnar yfir borgina en þeir héldu áður stærsta hliðinu inn í virknisvarða borgina. Klukkuturninn á Kalekapisi torgi er einnig hluti af virkinu sem umkringdi borgina.

Borgin byggðist upp frá gamla borgarvirkinu, Kaleici, og veggur sem umlykur gamla hlutann er kílómetri að lengd. Gaman er að rölta um þröngar og brattar götur gamla bæjarins og hvíla sig svo á einhverju af hinum mörgu kaffihúsum eða veitingastöðum á klettunum þar sem útsýnið yfir flóann er yndislegt. Í miðborginni er fjöldi veitingastaða og verslana þar sem verðlag er almennt hagstætt.

Í nágrenni Antalya er hægt að skoða helstu staði vestrænnar menningarsögu en við flóann eru rúmlega þrjátíu fornar borgir frá tímum Grikkja og Rómverja. Í fjöllunum er hægt að stunda göngur eða fara í siglingu niður fljótin sem renna til sjávar við Antalya.

Lara Beach

Lara ströndin teygir sig til austurs út frá borginni. Glæsileg hótel, með allt upp í sjö stjörnur, standa í röðum og inn á milli eru litlar verslunarmiðstöðvar. Á Lara ströndinni má finna eftirlíkingar af mörgum frægustu kennileita heims og hún hefur verið kölluð „Tyrkneska Vegas“. Ströndin sjálf er löng og breið með róandi öldunið og mjúkum sandi. Auðvelt er að skreppa þaðan inn í borg með leigubíl eða strætó.

Belek

Um 30 kílómetra frá Antalya er Belek þar sem nútíminn og fortíð koma saman á einstakan hátt. Þar geta ungir sem aldnir fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem ætlunin er að skoða fornsögulega muni eða njóta sólar og margvíslegrar afþreyingar, þá er Belek frábær staður. Fyrir þá sem vilja aðeins meiri ævintýramennsku er auðvelt að komast í ýmislegt vatnasport eins og brimbretti og sjóskíði.  Notalegur bæjarkjarni með verslunum, veitinga- og kaffihúsum er í Belek.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir án golfsetts

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg.
Handfarangurstaska 10 kg
Vildarpunktasöfnun
Ekki hægt að bæta við golfsetti

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Akstur til og frá flugvelli

Akstur frá flugvelli á hótel við komu
Akstur frá hóteli á flugvöll við brottför

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 325.500 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu