Miami Florida - Nassau Bahamas - George Town Grand Cayman - Cozumel Mexico - Puerto Costa Maya Mexico
Siglt með Celebrity Xcel, einu af glæsilegustu skipunum hjá Celebrity Cruises.
11. febrúar - 22. febrúar 2027
Fararstjóri: Kristjana Lilja Wade
Komdu með í ógleymanlega 11 nátta lúxusferð um Karíbahafið með glæsilega skemmtiferðaskipinu Celebrity Xcel sem er það nýjasta í flotanum hjá Celebrity, sjósett árið 2025.
Gist verður í 3 nætur í Miami áður en sigling hefst og haldið til suðrænna eyja þar sem hvítar sandstrendur, tærblátt haf og lifandi menning taka á móti gestum. Í Nassau á Bahamaeyjum gefst kostur á að njóta afslappaðs andrúmslofts, einstaks landslags og fjölbreyttrar afþreyingar. Á Grand Cayman bíður falleg náttúra og kristaltær sjór, en eyjan er þekkt fyrir fallegar strendur og líflegt sjávarlíf. Í Mexíkó bíða svo tveir áhugaverðir áfangastaðir. Í Cozumel fáum við að upplifa blöndu af litríkri menningu, sögu og náttúru, hvort sem við kjósum að fara í skoðunarferðir, slaka á við ströndina eða njóta lífsins í bænum. Í Costa Maya opnast dyr fornra menningarheima Maya-þjóðarinnar ásamt friðsælum ströndum og ekta karabísku andrúmslofti. Að lokum verður siglt aftur til Miami þar sem gist verður eina nótt fyrir heimferð.
Á siglingadögum gefst tími til að njóta alls þess sem Celebrity Xcel hefur upp á að bjóða – allt frá fyrsta flokks veitingastöðum og glæsilegum setustofum til heilsulindar, sundlaugarsvæða og afþreyingar á heimsmælikvarða. Hér er unnið eftir hæstu gæðakröfum þar sem áhersla er lögð á þægindi, hönnun og persónulega þjónustu sem gerir ferðina enn eftirminnilegri.
Innifalinn í verði ferðar er "Classic" drykkjarpakki:
