Icelandair flýgur beint til Orlando (MCO) allt árið. Farþegar koma sér sjálfir til og frá Bradenton.
Í Bradenton er stórkostlegt að njóta sólar og hressingar á baðströndum sem margir telja hinar bestu á Flórida.
Hér geta ferðamenn leikið golf á frábærum golfvöllum. Í menningar- og sólskinsbænum Sarasota, um 20. mín. akstur suður frá Bradenton, er ótal margt að sjá og skoða þegar fólk vill hvíla sig á sólböðum og busli í flæðarmálinu. Bradenton og Sarasota eru með fjölda verslanamiðstöðvar og því er þetta svæði einnig kjörið til verslunar.
Gott að vita:
- Ýmis afþreying er í boði í Orlando og nágrenni. Hægt að bóka hér
- Farþegar fá sendar upplýsingar um staðsetningu, heimilisfang og lyklakóda 4 vikum fyrir brottför
- Á meðfylgjandi hlekk finnur þú gjafabréf fyrir fríu bílastæði, lítilli móttökugjöf og sértilboð sem gildir í fjölda verslana í THE MALL AT MILLENIA í Orlando
- Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim
- Athugið að verð frá er miðað við tvo fullorðna og tvö börn undir 12 ára aldri í fjórar nætur Sætaframboð er takmarkað. Uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni og geta breyst eftir bókunarstöðu hverju sinni