Pingdom Check

Costa del Sol

Meira en 150 km af suðurströnd Spánar

Ef þig langar í dásamlegt frí á sólarströnd, þá er Costa del Sol rétti staðurinn með öllu sem til þarf fyrir notalegt og eftirminnilegt frí.

Costa del Sol nær yfir meira en 150 km af suðurströnd Spánar. Veðurfar svæðisins er með allra besta móti og endurspeglast ekki síst í því að nafn þess, Costa del Sol, þýðir einfaldlega Sólarströnd. Það nafn ber svæðið svo sannarlega með rentu því gera má ráð fyrir um 24°C meðalhitastigi, um 300 sólardögum á ári og strendurnar eru snyrtilegar og líflegar.

Höfuðstaður svæðisins er Malaga en strandlengjan teygir sig yfir nokkra heillandi bæjarkjarna sem áður voru fiskiþorp og hefur hver kjarni sín sérkenni. Stærstu kjarnarnir eru Marbella/Puerto Banus, Benalmadena, Torremolinos og Fuengirola.

Marbella og Puerto Banus

Marbella hefur löngum þekkst sem leikvöllur hinna ríku og frægu enda eru skemmtisnekkjur, golfbílar og merkjavara algeng sjón þar um slóðir. Þar er stutt í lúxusinn sem gerir það að verkum að svæðið hefur á sér stórborgarlegan blæ en um leið vel varðveitta andalúsíska sögu. Til dæmis er þar vel varðveittur, gamall bæjarkjarni.
Veitingastaðir í heimsklassa, lúxushótel og keppnisgolfvellir laða að sér ákveðna tegund ferðamanna. Svæðið er þekkt fyrir hágæða tískuverslanir, líflega næturklúbbamenningu og auðvitað Puerto Banus hafnarsvæðið þar sem hægt er að ganga um, virða fyrir sér snekkjurnar og njóta útsýnisins.
Veðurfarið er einstaklega gott í Marbella því þar er mikið skjól og sjórinn því stilltur. Í verslunarmiðstöðinni „La Cañ ada“ er að finna allar helstu verslanir og merkjavöru.

Benalmadena og Torremolinos

Strandbæirnir Benalmadena og Torremolinos eru hlið við hlið en þó eru þeir ólíkir og hafa ólíkt andrúmsloft. Benalmadena costa er við ströndina og þar eru flest hótelin. Puerto Marina höfnin er mjög vinsæll ferðamannastaður. Þar eru einnig líflegir veitingastaðir og barir. Við sjávarsíðuna er fjöldinn allur af litlum sandströndum til að prófa og á þeim stærri er öll helsta þjónusta. Meðfram strandlengjunni er göngugata sem nær alla leiðina til Torremolinos en þar er hægt að rölta um í rólegheitum, dag sem nótt og grípa sér tapas eða ljúffenga fiskrétti. Í Benalmadena eru einnig skemmtigarðurinn Tivoli World og sjávardýragarðurinn Sea Life.
Þrátt fyrir að Torremolinos hafi verið fyrsti bærinn á þessu svæði til að fara frá því að vera fiskiþorp í það að vera alvöru alþjóðlegur ferðamannastaður, um miðja síðustu öld, hefur hann þó haldið í sinn ósvikna bæjarbrag og stoltið yfir upprunanum er augljóst. Þetta er áfangastaður sem er unun að heimsækja allt árið um kring, því veðrið er hlýtt og viðmótið sömuleiðis. Göngugata nær frá Benalmadena og alla leið í gegnum Torremolinos og þar sem nánast engin bílaumferð er í næsta umhverfi strandlengjunnar fylgir göngunni mikil afslöppun. Fjölmargir veitingastaðir, barir og klúbbar eru á svæðinu svo þar ætti engum að leiðast.

Fuengirola

Fuengirola er vinsæll áfangastaður sem laðar að sér hvers konar sóldýrkendur. Mikið skjól á svæðinu gerir það að verkum að þarna er afar milt veðurfar og stilltur sjór. Svæðið hentar því fyrir alla; fjölskyldur sem vilja leika sér á ströndinni og í sjónum, ferðamenn sem vilja slaka á við sjávarsíðuna og þá sem hafa áhuga á að stunda vatnaíþróttir af ýmsu tagi.
Í Fuengirola, eins og hinum bæjunum, eru margar góðar sandstrendur þar sem hægt er að leigja sólbekki, leggjast niður með kaldan drykk í hönd og sleikja sólina. Einnig er hið sígilda í boði eins og að fara á brimbretti, vindbretti, sjóskíði, hjólabát, stunda köfun, siglingar eða fara að veiða. Eftir strandlengjunni liggur göngugata þar sem val er um klúbba, veitingastaði, kaffihús og bari – allt eftir því hver stemningin er hverju sinni.

Andrúmsloftið á Costa del Sol er afslappað en þar er þó jafnframt fjörugt næturlíf fyrir þá sem vilja fara út að skemmta sér. Fjölmargir góðir veitingastaðir og barir eru á svæðinu og gaman að upplifa matarmenningu og vínmenningu Andalúsíu en héraðið er eitt fremsta víngerðarsvæði Spánar. Segja má að á Costa del Sol sé allt til alls fyrir fríið í sólinni; vatnaíþróttir og fjölbreyttir útivistarmöguleikar, skemmtigarðar, menning, verslun og frábær tækifæri til sólbaðsiðkunar. Costa del Sol er einnig eitt besta golfhérað Spánar en þar eru meira en 60 flottir vellir. Hvað meira þarf til?

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 99.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu