Einn besti golfáfangastaður Evrópu
9. apríl - 19. apríl, 10 nætur
18. apríl - 28 apríl, 10 nætur
Beint flug til Kalamata í Grikklandi, 50 mín akstursfjarlægð frá Costa Navarino. Tveir hringir með golfbíl á öllum fjórum völlum ásamt hálfu fæði og drykkjum með kvöldverð.
Costa Navarino er glæsilegur lúxusdvalarstaður á Pelópsskaga í Grikklandi og einn besti og margverðlaunaðasti golfáfangastaður Evrópu. Svæðið er þekkt fyrir fallega náttúru, milt loftslag, lúxushótel og frábæra golfvelli sem njóta sín í stórbrotnu landslagi við Jónahaf.
Golfið er eitt helsta aðdráttarafl Costa Navarino. Þar eru fjórir vandaðir 18 holu golfvellir. Vellirnir bjóða upp á fjölbreytta áskorun fyrir bæði vana kylfinga og þá sem eru að byrja í golfi. Útsýnið yfir hafið, fjöllin og ólífulundina gerir golfupplifunina sérstaklega eftirminnilega.
Fyrir utan golf býður Costa Navarino upp á fjölbreytta afþreyingu, góðan mat, heilsulindir, strendur og fjölmarga möguleika til útivistar svo sem göngur, hjól, tennis, padel og alls kyns vatnasport svo eitthvað sé nefnt. Þetta er því ekki aðeins áfangastaður fyrir golfáhugafólk heldur einnig fyrir þá sem vilja sameina golf, afslöppun og lúxus í fallegu umhverfi.
Costa Navarino er því frábær kostur fyrir golfferð þar sem hægt er að njóta fyrsta flokks golfvalla, grískrar gestrisni og einstakrar náttúru á einum og sama stað.
Golfvellirnir eru fjórir talsins og farþegar okkar munu spila alla fjóra vellina tvisvar sinnum, samtals 8 golfhringir með golfbíl í 10 nátta ferð.
The Dunes Course
The Dunes Course er fyrsti 18 holu golfvöllurinn á Costa Navarino og liggur í fallegu landslagi með útsýni yfir Jónahafið. Völlurinn sameinar opið strandlandslag, ólífulundi og náttúrulega landslagseinkenni og hentar kylfingum á mismunandi getustigum. Við völlinn er glæsilegt klúbbhús með veitingastað, bar og fallegri verönd.
The Bay Course
The Bay Course er 18 holu völlur sem liggur nær sjónum og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Navarino-flóann. Völlurinn er fjölbreyttur og fallega hannaður í náttúrulegu landslagi, þar sem nokkrar holur liggja meðfram ströndinni. Klúbbhúsið býður upp á veitingar og afslappað andrúmsloft með útsýni yfir golfvöllinn og hafið.
The Hills Course – International Olympic Academy Golf Course
Þessi glæsilegi 18 holu völlur er hluti af Navarino Hills og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Messiníu og Jónahafið. Völlurinn er hannaður í náttúrulegu landslagi með olífulundum, hæðum og víðáttumiklu útsýni. Klúbbhúsið er nútímalegt og notalegt og býður upp á veitingar, setustofu og útsýni yfir fallegt golfsvæðið.
The Hills Course – The Westin Resort Course
Hinn völlurinn á Navarino Hills er 18 holu völlur sem býður upp á fjölbreytta og krefjandi golfupplifun. Hér spila kylfingar í fallegu landslagi með ólífutrjám, hæðum og útsýni yfir Messiníu. Klúbbhúsið er glæsilegt og nútímalegt, með veitingastað og verönd þar sem tilvalið er að slaka á og njóta útsýnisins eftir hringinn.
Aukagolf er hægt að bóka og greiða á staðnum og kostar 150 EUR á mann hringurinn með golfbíl og akstri fram og tilbaka á golfvöllinn.
Klúbbhúsin á Costa Navarino eru hluti af upplifuninni og bjóða upp á allt sem kylfingar þurfa fyrir og eftir golfhringinn – frá góðum mat og drykkjum yfir í afslöppun á fallegum veröndum. Sameiginlegt með þeim öllum er vönduð þjónusta, nútímaleg hönnun og stórkostlegt útsýni yfir golfvellina og gríska landslagið.
Innifalið í pakkanum er hálft fæði ásamt drykkjum með kvöldverði (Innlent borðvín, bjór, gos og vatn). Róterað er á milli þeirra veitingastaða sem eru opnir hvert kvöld. Kvöldmatur er innifalinn í 9 nætur, gert er ráð fyrir einu fríkvöldi þar sem fólk getur heimsótt grísku þorpin í nágrenninu.