Pingdom Check

Draumaferð fyrir dreymandi konur

Draumsaga kvenhetjunnar

Draumanámskeið 6. - 13. október 2026
Follina á Ítalíu 

Leiðbeinendur: Elísabet Lorange og Valgerður H. Bjarnadóttir
Hámark 18 manns.

Þessi einstaka námskeiðsferð felst, eins og önnur námskeið Draumsögu, í því að byggja upp og dýpka sambandið milli draum- og vökuvitundar og er umhverfið í Follina tilvalið fyrir það. Það er gert með fræðslu, umræðu, íhugun, tjáningu, skrifum og sköpun og þó ekki síst með því að vinna saman með drauma í hópi. Innblástur er sóttur í umhverfið allt um kring. Auk draumanna verða nýtt tengsl við náttúruna, fornar sagnir og ævintýri, þar sem innra draumferðalagið er sett í samhengi við ferð „Kvenhetjunnar“ í átt til heilunar.

Dagleg draumavinna er að jafnaði frá kl. 9-12. Þá borðum við saman í hádeginu og tökum svo gott hlé. Seinni part dags höldum við áfram draumavinnunni og suma daga sækjum við innblástur  í náttúruna og menninguna í Follina og nágrenni. Í lok dags komum við saman í spjall og hugleiðslu fyrir nóttina.

Lögð er áhersla á uppbyggjandi samveru í fallegu umhverfi í litlum bæ sem er aðeins í klukkustundar fjarlægð frá Feneyjum og heitir Follina.  Gist er á fallegu 4* hóteli ,  í göngufæri við miðbæinn og með frjósama náttúruna allt um kring. Morgunmatur er innifalinn og tvær skoðunarferðir.

Þátttakendur eru á bilinu 16 – 18 og þannig fær hver einstaklingur að njóta sín.

Námskeiðið er opið öllum konum sem hafa áhuga á að vinna með drauma til aukinnar sjálfþekkingar. Það er tilvalið fyrir vinkonur, pör, mæðgur, samstarfskonur o.s.frv. til að styrkja tengslin.

Leiðsögn og umsjón: Draumsaga, samstarfsverkefni þeirra Elísabetar og Valgerðar, sem hóf göngu sína haustið 2017

Elísabet Lorange er kennari og listmeðferðarfræðingur að mennt. Hún hefur unnið sem sjálfstætt starfandi listmeðferðarfræðingur frá árinu 2005. Hún hefur komið að meðferðarvinnu og handleiðslu með hópum og einstaklingum á öllum aldri. Undanfarin ár hefur hún sérhæft sig í vinnu með fósturfjölskyldum og áföllum tengdum ofbeldi kvenna. Elísabet hefur í tugi ára unnið með sína eigin drauma sem og drauma þeirra sem það vilja og þurfa í listmeðferðinni.

Valgerður H. Bjarnadóttir er félagsráðgjafi, með BA í heildrænum fræðum með áherslu á draumavinnu og MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu. Hún hefur starfað að málefnum kvenna, fræðslu og ráðgjöf í áratugi og hefur að baki fjölþætta reynslu af félagsmálum, stjórnmálum, heilbrigðismálum, menningar- og menntamálum og jafnréttismálum. Hún hefur nýtt og skoðað draumana sína frá barnsaldri og nýtir drauma og draumvitundina markvisst í öllu sínu starfi.

Í þessari ferð sem er eingöngu ætluð konum er flogið í beinu flugi til Feneyja á Ítalíu en þaðan er haldið til fallega bæjarins Follina sem er aðeins í um klukkustundar fjarlægð. Þar eru m.a. hinar fallegu Prosecco hæðir Conegliano og Valdobbiadene, sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Svæðið einkennist af vínekrum, skóglendi, mjúkum hæðum og sögulegum þorpum og býður því  upp á einstaka blöndu af náttúrufegurð, sögu og ítalskri sveitamenningu. Dvalið og unnið verður á draumahótelinu Hótel dei Chiostri. Þarna er kjörið tækifæri að upplifa, dreyma og njóta í rólegu umhverfi þar sem tíminn virðist líða hægar en annars staðar.

Hægt er að skoða nánar um  hótel, skoðunarferðir og flug hérna fyrir neðan 

 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Gisting með morgunverði

Morgunverður innifalinn

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Akstur til og frá flugvelli

Akstur til og frá flugvelli á hótel

Skoðunarferðir

Skoðunarferðir samkvæmt ferðalýsingu innifaldar í verði ferðar

Gististaðir

fráISK 389.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu