Pingdom Check

Edinborg

Fegursta borg Skotlands í beinu flugi

Við fljúgum nú beint til Edinborgar og flugið tekur aðeins um 2.5 klukkustundir.
Þessi heillandi höfuðborg Skotlands er önnur stærsta borg landsins, næst á eftir Glasgow, og býður upp á einstaka blöndu af sögu og líflegri menningu. Hún hefur sinn sérstaka sjarma og er auðveld og skemmtileg að heimsækja. Í borginni miðri trónir Edinborgarkastalinn - tákn borgarinnar og stolt heimamanna. Þaðan liggur leiðin að gamla bænum þar sem allt er til alls.

Frá kastalanum niður að Holyrood-höll liggur hin fallega gata Royal Mile. Ber gatan nafn með rentu þar sem farið var með meðlimi konungsfjölskyldunnar í hestvögnum míluvegalengd frá kastala að höllinni. Á verslunargötunni Princess Street má finna skemmtilegar verslanir en hún er aðal verslunargata borgarinnar. Í götunum í kring er mikið úrval af veitingahúsum og börum og þá sérstaklega við Rose Street.

Fjallið Arthur’s Seat er hæsti punktur borgarinnar og gangan upp á það hentar flestum. Á leiðinni er hægt að njóta kyrrðarinnar þrátt fyrir nálægðina við borgina og efst er magnað útsýni. Það er hægt að byrja steinsnar frá miðbænum, rétt hjá Holyrood-höll, en nokkrar leiðir eru í boði. Gönguleiðin er vinsæl, bæði meðal heimamanna og ferðamanna.

Hvort sem þú vilt skoða kastala, smakka skoskan viskí, fara í gönguferð eða dagsferð út fyrir borgina, þá er margt að upplifa í Edinborg og nágrenni.

Hér má finna upplýsingar um og bóka skemmtilega afþreyingu sem er í boði í Edinborg og nágrenni!

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting

Gisting í tveggja manna herbergi
Morgunverður innifalinn

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 86.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu