ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA kl. 10:00
SUNNUDAGA kl. 13:30
Colosseum hringleikahúsið og Fornleifagarðurinn Forum Romano þar sem saga Rómaveldis lifnar við.
Við byrjum í Forum Romano, hjarta hins forna Rómar, þar sem við göngum um meðal tignarlegra minja eins og Domus Tiberiana hallarinnar, Sigurboga Títusar, Basiliku Emilíu, Basiliku Júlíu og margra annarra sögufrægra bygginga. Á þessu svæði var miðpunktur stjórnmála, trúarbragða og daglegs lífs í Róm til forna. Að því loknu skoðum við Colosseum að innan, stærsta hringleikahús fornaldar, þar sem skylmingaþrælar og villidýr öttu kappi fyrir framan þúsundir áhorfenda.
ATH. Vegna mikillar eftirspurnar getur verið erfitt að fá miða í Colosseum með stuttum fyrirvara.
Lengd: 3 - 3,5 klst.