Við kveðjum Heklu Aurora sunnudaginn 12. október eftir áralangt samstarf þar sem hún hefur heillað farþega okkar með töfrum norðurljósanna, fallega skreytt í litadýrð þeirra.
Þessi einstaka Boeing 757 flugvél var tekin í notkun árið 2015 sem Hekla Aurora og mun nú halda á vit nýrra ævintýra.
Sérstakt kveðjuflug vélarinnar er ógleymanlegt tækifæri fyrir flugáhugafólk til að fagna arfleifð einnar ástsælustu flugvélar Icelandair.
Gluggasæti eru í boði gegn aukagjaldi og veita besta mögulega útsýnið í fluginu.
Takmarkað magn sæta er í boði, svo ekki láta þetta tækifæri framhjá þér fara.
Þú getur einnig keypt Saga Premium sæti hér .
Við stefnum á að fljúga í lágflugi yfir nokkrar náttúruperlur Íslands. Við ákveðum endanlega þegar nær dregur hvert er best að fljúga með sveigjanleika og veðurspá í huga.