Pingdom Check
frá7.900 kr.

Í samvinnu við Rómarrölt bjóðum við uppá skemmtilegar og fræðandi skoðunarferðir.

MIÐVIKUDAGA kl. 17:00

Við byrjum á að skoða Colosseum hringleikhúsið að utan og Sigurboga Konstantínusar mikla. Þaðan göngum við Via dei Fori Imperiali þar sem við njótum útsýnis yfir gömlu keisaratorgin, Foro Traiano, Foro di Cesare og Foro di Augusto. Förum upp á Capitol hæðina, á torgið sem Michelangelo hannaði, þar sem við sjáum yfir Foro Romano. Að lokum heimsækjum við gyðingahverfið í Róm, eitt elsta gyðingahverfi heims. Við ljúkum ferðinni á Largo di Torre Argentina, þar sem Júlíus Sesar var svikinn og myrtur í Curia Pompeii árið 44 f.Kr. Ferðin endar í hjarta miðborgarinnar og í næsta nágrenni er fjölbreytt úrval af veitingastöðum.

Þessi ferð hentar vel til að kynnast sögu fornu Rómar og Colosseum og er svo tilvalið að fara á eigin vegum inn í Colosseum.

Lengd: 2,5 - 3 klst.