Í samvinnu við Rómarrölt bjóðum við uppá skemmtilegar og fræðandi skoðunarferðir.
SUNNUDAGA kl. 09:00
Sögulegi Porta Portese markaðurinn er staðsettur í hinu heillandi Trastevere hverfi og er sá frægasti og stærsti í borginni og með þeim stærstu í Evrópu. Heimsókn á markaðinn er sannur sunnudagssiður fyrir Rómverja. Hann býður upp á fjölbreytt úrval, allt frá fatnaði (nýjum og gömlum, notuðum og vintage) og fylgihlutum til fornmuna. Vintage muni, nútímalist, málverk, bækur, skartgripir, úr, húsgögn, vínyl og geisladiskar, raftæki og margt fleira. Porta Portese markaðurinn er sannkölluð paradís fyrir þá sem elska verslun og vintage.
Hildur Hinriksdóttir, Hönnuður mun leiða ykkur um markaðinn og gefa ykkur góð ráð hvernig og hvar er hægt að gera góð kaup, einnig mun hún kynna ykkur fyrir hluta markaðarins sem heimamenn þekkja vel, en fer oft framhjá þeim er heimsækja hann í fyrsta sinn. Við heimsækjum Roberto sem hefur verið að selja á markaðnum á hverjum sunnudegi s.l. 40 ár.
Mælum með að mæta í góðum skóm og með reiðufé (helst i smáum seðlum)
Einnig getum við skipulagt sérheimsókn í Fornminjaverslun Robertos.
Lengd: 60 - 90 mín