Pingdom Check
frá7.900 kr.

Í samvinnu við Rómarrölt bjóðum við uppá skemmtilegar og fræðandi skoðunarferðir.

MIÐVIKUDAGA kl. 17:00

Ferðin hentar einstaklega vel til að fá góða yfirsýn yfir borgina og upplifa töfra hennar. Við skoðum stórbrotna og sögufræga staði sem hrífa bæði augu og huga. Á meðal staða sem við heimsækjum eru Spænsku tröppurnar, hinn glæsilegi Trevi-gosbrunnur, Pantheon hofið (að utan), líflega Navona torgið og að lokum Campo de' Fiori torgið, þar sem fjöldi skemmtilegra veitingastaða og fjölbreytt mannlíf bíður þín.

Ferðin býður ekki aðeins upp á sjónræna upplifun heldur einnig áhugaverðan fróðleik um sögu og menningu sem hefur mótað þessa einstöku staði.
Lengd: 2,5 - 3 klst.