Í samvinnu við Rómarrölt bjóðum við uppá skemmtilegar og fræðandi skoðunarferðir.
ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA kl. 15:00
SUNNUDAGA kl. 10:00
Við heimsækjum Péturskirkjuna, stærstu og mikilvægustu kaþólsku kirkju í heimi, sem er staðsett í Vatíkanríkinu, sjálfstæðu borgríki í hjarta Rómar. Kirkjan var reist yfir gröf Péturs postula og er sambland meistaraverka endurreisnar- og barokktímans. Í kirkjunni skoðum við meðal annars hvolþakið sem Michelangelo hannaði, Pietà-styttuna, hið tignarlega altaristjald Berninis og fjölda annarra glæsilegra listaverka frá þessum tímabilum. Í ferðinni fræðumst við um upphaf kristninnar og sögu Vatíkanríkisins.
Einnig skoðum við stórfenglega Péturstorgið, þar sem súlnagöng Berninis og önnur sögufræg listaverk og minnismerki draga að sér athygli. Ef ferðin er farin á sunnudegi gefst tækifæri til að sjá Páfann flytja sunnudagsbænina L'Angelus della domenica.
Athugið: Í þessari ferð er ekki farið inn í Sixtínsku kapelluna þar sem hún er hluti af Vatíkanasafninu.
Lengd: 2,5 - 3 klst.