Pingdom Check

Gdańsk

Sögufræg og heillandi Eystrarsaltsperla

Gdańsk í Póllandi er heillandi, glæsileg og hlýleg hafnarborg. Hún hefur allt það helsta upp á að bjóða fyrir borgarferð: skemmtilegt mannlíf, falleg stræti og hagstæða verslun. Borgin hefur fest sig í sessi sem vinsæll áfangastaður allt árið og er einn af aðal ferðamannastöðum landsins.
Gamli bærinn er hjarta borgarinnar og er þekktur fyrir litrík hús, þröngar steingötur og fallegar kirkjur. Á Dluga, einni vinsælustu göngugötu Gdańsk, ríkir lífleg stemning og þar má finna notaleg kaffihús og girnilega veitingastaði sem bjóða bæði pólska- og alþjóðlega rétti. Í nágrenninu má einnig finna helstu menningarperlur borgarinnar, eins og ráðhúsið, Solidarity safnið og safnið um seinni heimstyrjöldina.

Verslanir á svæðinu eru allt frá litlum mörkuðum og sjarmerandi sérverslunum yfir í stórar verslanakeðjur.
Það er einnig gaman að kíkja yfir til nærliggjandi borga eins og Sopot eða Gdynia en þar eru huggulegar sandstrendur og frábærar heilsulindir þar sem notalegt er að eyða deginum og dekra við sig.
Hafnarborgin Gdańsk þjónar mikilvægu hlutverki fyrir landið, með ferjum yfir til Svíþjóðar og auknum fjölda skemmtiferðaskipa. Hún er ein vinsælasta borg Póllands, bæði fyrir stuttar og langar ferðir. Borgin er áfangastaður sem býður upp á allt: sögu, menningu, sjávargolu, frábær veitingahús og heillandi gamlan bæ.

Taktu frá helgi - eða jafnvel lengra frí - og leyfðu þér að heillast af Gdańsk.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Gisting

Gisting í tveggja manna herbergi
Morgunverður innifalinn

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Gististaðir

fráISK 69.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu