Hægt er að velja ótakmarkað golf daglega eða ótakmarkað golf annan hvern dag.
Royal Tenerife Country Club er mjög hugguleg íbúðagisting á golfvellinum eða um 3 mín ganga að klúbbhúsinu. Á svæðinu er sundlaugarbar með veitingum, kaffihús og matvöruverslun. Hér er hægt að skoða myndband frá Royal Tenerife Country club.
Santa Barabara Ocean Club er einnig sjarmerandi íbúðarhótel staðsett neðan við golfvöllinn, við sjóinn, um 1,5 km frá klúbbhúsinu. Á svæðina er stór sundlaug, veitingarstaður, nokkrir barir ásamt sundlaugarbar og matvöruverslun er á hótelinu. Hér er hægt að skoða myndband frá Santa Barbara.
Golfvöllurinn: Golf del Sur völlurinn er einstaklega fallegur 18 holu völlur með mismunandi einkennum. Völlurinn skiptist í 9 holur Norður og 9 holur Links þar sem spilað er í átt að sjónum. Heilmikið landslag og gil eru í sumum brautum. Allar brautirnar eru frekar breiðar og flatirnar eru stórar. Frá klúbbhúsinu á Golf del Sur er stórkostlegt útsýni yfir hluta af vellinum og út á glitrandi hafið.
Rástímar okkar eru oftast á bilinu 08.00-09.30 daglega
Golfbílar:
Golfbílar eru pantaðir og greiddir í golfskálanum á Golf del Sur:
5 hringja pakka tilboð fyrir Icelandair VITA farþega er 33 evrur fyrir 18 holur.
Golfkerrur daglega eru innifaldar í öllum okkar ferðum.
Ótakmarkað golf alla daga með kerru eða annan hvern dag nema komu og brottfarardaga.
Fararstjórn (lágmark 16 manns).
Matur, drykkir og akstur til og frá flugvelli og að golfvellinum er ekki innifalinn.
Athugið:
Umtalsverðar breytingar hafa staðið yfir á golfvellinum á Golf del Sur upp á síðkastið. Aðalmarkmið þessara breytinga er að gera allan völlinn um 95% sjálfbæran.
- Í byrjun árs 2026 hófust framkvæmdir við nýja Driving Range klúbbhúsið, Upupa Rock golfmiðstöðin.
- Unnið er áfram á nýju flötinni á holu númer 7 á norðurvelli, sem og á nýjum hluta landsvæðisins. Það er á eftir vatninu vinstra megin og á stærra stöðuvatni sem er hluti af nýju holunni.
- Í janúar 2026 opnuðu nýir teigar á norðurvellinum á holum 1, 3 og 6.
- Sáð verður í nýju pútt og vipp flötina við fyrsta teig á norðurvellinum, og bygging á nýju ræsishúsi hefst.
Í hnotskurn eru helstu breytingar eftirfarandi:
- Aðalmarkmið þessara breytinga er að gera allan völlinn um 95% sjálfbæran m.a. með því að hafa sjálfbært vatnskerfi og minni vinnu fyrir öll tæki sem á að gera völlinn skemmtilegri, léttari og hraðari að spila.
- Það verða 5 teigstæði á öllum holum, minna af trjám, víðari og léttari brautir.
- Nýtt æfingasvæðið mun opna 2026.
- 25 nýir golfbílar með GPS kerfi munu verða afhentir 2026.
- Bæting við þjónustu varðandi golfsett: Viðskiptavinir okkar fara inn í móttöku fyrir golf og ná í lykla af golfbílum og golfsettin verða tilbúin á bílunum. Að leik loknum taka starfsmenn við settunum og ganga frá þeim í geymslu.
- Fjölbreyttari matseðill er kominn í klúbbhúsið og viðskiptavinum hefur líkað vel við að borða þar.