Tvær brottfarardagsetningar:
14.okt í 14, 17 eða 21 nótt
17.okt í 11, 14 eða 18 nætur
Fararstjóri er: Lilja Jónsdóttir
Gist verður á Spring hotel Vulcano með morgunmat innifalinn en þar eru gæðin í fyrirrúmi.
Á hótelinu er vönduð skemmtidagskrá, dans á hverju kvöldi og frábær aðstaða fyrir okkar góða hóp.
Dagskráin hjá Lilju er fjölbreytt, þjónustan góð og skemmtikvöldin einkennast af söng og dansi.
Spilabingó er aldrei langt undan sem og mini-golf og margt fleira sem eyjan býður uppá.
Lilja hefur verið fararstjóri í skemmtisiglingum, a.m.k. tvisvar á ári undanfarin 12 ár. Þar er alltaf glaumur og gleði sem hún mun taka með sér til Tenerife. Hún hefur einnig verið fararstjóri í skíðaferðum á Ítalíu og með eldri borgara á suðrænum slóðum eins og t.d. á Alicante og Mallorca. Lilja menntaði sig í Bretlandi og lauk námi frá Ferðamálaskóla Íslands vorið 2010. Hún er í sambúð og á 3 uppkomin börn.
Á Tenerife er einstök veðursæld, góður aðbúnaður, verslanir, veitingastaðir, sól og sandur.
Það er engin tilviljun að Íslendingar kjósa að fara til Tenerife aftur og aftur.