Vinsælasti áfangastaður íslenskra kylfinga í 30 ár!
Islantilla er í Andalucia héraði ekki svo langt frá landamærum Portúgals. Aksturinn frá Faro flugvelli til Islantilla tekur u.þ.b. 1 klst. og 5 mín.
Það er ekki að ástæðulausu sem Islantilla Golf hefur notið ómældra vinsælda farþega okkar sl. ár. Margir sækja þangað ár eftir ár enda hentar völlurinn kylfingum með mismunandi getu og flestum líkar afar vel hinar breiðu brautir og stóru flatir vallarins.
Golfskóli verður í boði á Islantilla í okkar ferðum, kennt er fyrir hádegið 6 daga í hverri ferð. Hægt er að haka við golfskóla undir aukaþjónustu þegar ferðin er bókuð í bókunarvélinni.
27 holu golfvöllur hótelsins er með gott æfingasvæði til að æfa höggin og stutta spilað á bæði púttflöt og flöt til að vippa inná. Klúbbhúsið er beint á móti hótelinu.
Nú er hægt að fá leigt sett á staðnum fyrir þá sem vilja ferðast létt. Hér er kylfuleiga sem sendir kylfur til Islantilla ef farþegar óska eftir að fá leigðar kylfur. Í Islantilla bænum er lítill verslunarkjarni og þar er m.a. apótek, ýmsar verslanir og matvöruverslun. Meðfram strandlengjunni eru veitingastaðir og barir.