Pingdom Check

Istanbúl og Cappadocia

Istanbúl og Cappadocia

18. - 29. apríl 2027
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir

Komdu  með okkur í töfrandi ferð þar sem Istanbúl og Cappadocia sýna okkur sínar fegurstu hliðar. Við byrjum í Istanbúl, þar sem Hagia Sofia, Bláa moskan, Topkapi-höllin og líflegir basararnir gefa okkur einstaka innsýn í sögu og menningu borgarinnar. Við röltum um þekktustu götur Istanbúl, njótum litadýrðar Grand Bazaar, heillumst af neðanjarðarhöllinni Basilica Cistern og upplifum daglegt líf í hinum sjarmerandi hverfum Pera, Cihangir og Karaköy.

Þaðan tökum við stefnuna á Cappadocia, land álfastrompa, hellakirkna og ævintýralegra dala. Við skoðum Göreme-útisafnið, Munkadal, Dúfnadal og Ástardal og heimsækjum falleg þorp þar sem tíminn virðist standa í stað. Fyrir þá sem vilja bíður ógleymanleg loftbelgsferð yfir dalina í morgunroðanum.

Að lokum snúum við aftur til Istanbul þar sem ganga um borgina og kvöldsigling um Bosporus-sundið setur skemmtilegan endi á ferðina. 

Istanbul er fjölmennasta borg Tyrklands, miðstöð menningar og fjármála landsins. Borgin liggur beggja vegna Bosporussunds, sem tengir Svartahaf og Marmarahaf, þannig að borgin er eins og brú milli Asíu og Evrópu, bæði hvað varðar landafræði og menningu. Áætlað er að á milli 15 til 19 milljónir búi í borginni, sem þýðir að hún er ein af stærstu borgum veraldar. Í borginni er mikill fjöldi sögulegra bygginga, spennandi listasafna og annarra safna. Þar ber hæst Topkapi höllina, Hagia Sophia og Bláu Moskuna. Í Istanbúl er fjöldi verslanamiðstöðva, sumar þeirra gamlar og sögufrægar, en aðrar nýtískulegar. Basarinn mikli, sem hefur starfað frá árinu 1461, er einn elsti og stærsti yfirbyggði markaður veraldar. Markaðurinn Mahmutpasha basar er undir berum himni og nær frá Basarnum mikla að Egypska basarnum, sem hefur verið stærsti kryddmarkaður Istanbúl frá árinu 1660.

Í borginni er oft mikið um að vera, mikil umferð og mannþröng, en á sama tíma er hún spennandi og sjarmerandi sem ber keim af bæði austri og vestri.

Cappadocia er eitt þekktasta og sérstæðasta landsvæði Tyrklands, mótað af eldfjöllum, vindi og vatni í þúsundir ára. Svæðið er staðsett í miðhluta landsins og er víðfeðmt hálendissvæði þar sem finna má einstök jarðfræðifyrirbæri eins og svokallaða álfastrompa, djúpa dali og fornar íbúðarhellur. Fyrstu byggðir á svæðinu eru taldar ná aftur til hittíta, en á fyrstu öldum kristninnar grófu munkar út kirkjur og klaustur í hraunmyndunum, og má enn sjá falleg málverk og vel varðveitt rými í hellakirkjunum.

Í Cappadocia eru margar af helstu náttúruperlum Tyrklands: Göreme-útisafnið, Dúfnadalurinn, Ástardalurinn og Munkadalurinn, þar sem klettar og klappir mynda landslag sem minnir á bæði ævintýri og tunglferðir. Litlir staðir eins og Göreme, Avanos og Cavusin bjóða upp á rólegt andrúmsloft þar sem hefðir, handverk og saga blandast saman.

Cappadocia er einnig heimsfræg fyrir loftbelgsferðir sínar, þar sem tugir belga rísa í loftið við sólarupprás og svífa yfir dali og klettamyndanir í mildri morgunbirtu. Þetta einstaka samspil náttúru, sögu og kyrrðar gerir Cappadocia að einum eftirminnilegasta áfangastað Tyrklands.

Innifalið í ferðinni: 

  • Flug báðar leiðir með millilendingu í Kaupmannahöfn
  • Gisting í 11 nætur með morgunverði
  • Skoðunarferðir í Istanbúl skv ferðalýsingu
  • Flug til og frá Kayseri (Cappadocia)
  • Skoðunarferðir í Cappadocia skv. ferðalýsingu
  • Aðgöngumiðar á fornleifar, hallir, kirkjur
  • 4 hádegisverðir og 5 kvöldverðir
  • Einkasigling á Bosporus

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Gisting með morgunverði

Morgunverður innifalinn

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Skoðunarferðir

Skoðunarferðir samkvæmt ferðalýsingu innifaldar í verði ferðar

Gististaðir

fráISK 759.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu