UPPSELT!
Komdu með stuðninginn og fljúgðu út á umspilsleik íslenska kvennalandsliðsins fyrir HM 2023!
Þann 11. október næstkomandi mætast Ísland og Portúgal á Estádio Capital do Móvel í Portúgal. Þessi leikur er mjög mikilvægur og þá munar um stuðning landa í stúkunni!
Kvennalandslið Íslands í fótbolta mun keppa við lið Portúgals í heimsborginni Porto. Leikurinn ræður úrslitum um það hvort liðið verður með á HM í Eyjaálfu næsta sumar.
Ef Ísland vinnur andstæðing sinn, Portúgal, í venjulegum leiktíma eða framlengingu þá er liðið öruggt um sæti á HM.
Svona tækifæri koma ekki oft og því höfum við sett saman pakkaferð fyrir stuðningsfólk.
Í boði er dagsferð til Porto 11. október.
Verð á mann 69.900,-
Innifalið: Flug, miði á leik Íslands gegn Portúgal og rúta til og frá flugvelli erlendis.
Miðaafhending fer fram í Porto
Þar sem þetta er leiguflug, ekki hefðbundið flug þá er ekki hægt að netinnrita sig fyrir þetta flug. Það verður sér innritunarborð í Keflavik merkt Porto (númer 28-30)
Athugið takmarkað sætaframboð.
Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.