Mæðgurnar Edda Björgvins og Margrét Ýrr sjá um gleðina, kennsluna og hreyfinguna í þessari 7 nátta ferð, 27.september - 4.október.
Lögð er áhersla á uppbyggjandi samveru í fallegu umhverfi þar sem gist er á Pestana Carlton, sem er 5* hótel við sjóinn, í göngufæri við miðbæ Funchal.
Við bjóðum allar konur velkomnar í viku ferð til Madeira í lok september.
Það eru mæðgurnar Edda Björgvinsdóttir og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir sem sjá um fræðslu, sálrænan stuðning, jóga, slökun og nærandi samveru.
Edda Björgvinsdóttir leikkona er flestum Íslendingum kunnug sem leikkona, höfundur og fyrirlesari til margra ára. Eftir að hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands nam hún heimspeki við HÍ, er með MA í Menningarstjórnun og með diplóma á MA stigi í Jákvæðri Sálfræði og Sálgæslu frá Háskóla Íslands. Hún hefur meðfram leiklistinni farið í fjölmargar kvennaferðir um alla Evrópu og að auki haldið fyrirlestra og námskeið í velflestum stórfyrirtækjum landsins. Þar hefur verið boðið upp á ýmis konar þjálfun svo sem tjáning, styrkleikaþjálfun, húmor og gleði, heilsuefling, hamingjuþjálfun, sjálfsstyrking, sálgæsla og margt fleira.
Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir er hjúkrunarfræðingur með MS gráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og diplóma í sálgæslu. Hún er einnig menntaður jóga og jóga nidra kennari og lauk námi í hugrænni endurforritun hjá Dáleiðsluskóla Íslands og er því klínískur dáleiðari. Margrét starfar sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu Rangárþings og í Sigurhæðum á Selfossi með stuðningsviðtöl fyrir konur sem orðið hafa fyrir ofbeldi. Margrét hefur starfað í björgunarsveit í 30 ár og lokið fjölda námskeiða í tengslum við sálrænan stuðning og áfallahjálp og er í viðbragðshóp Rauðakrossins á Suðurlandi í sálrænum stuðningi.
Friðsæld, fallegt landslag og fjölbreyttur gróður ásamt afar mildu veðurfari, heillar og laðar til sín ferðamenn víða að. Madeira er frekar lítil portúgölsk eyja, tæplega 800 ferkílómetrar, en saga hennar er afar forvitnileg. Eyjan sjálf og nálægu eyjarnar Porto Santo og Desertas eyjar voru mikilvæg bækistöð hins mikla landkönnunar- og nýlenduveldis Portúgala fyrr á öldum og drógu að sér sæfara og drekkhlaðin kaupskip sunnan úr heimi. Þá sem nú er hér létt yfir öllu og gaman að vera. Við mætum dugmiklum og fjörugum eyjarskeggjum og fjölbreyttu mannlífi í höfuðborginni Funchal sem og í hinum fjölmörgu þorpum inni á eyjunni þar sem lífið gengur samt í allt öðrum takti og andrúmsloftið er annað.
Funchal, sem stendur við skínandi klettastrendur Atlantshafsins, er fjölskrúðug og falleg borg með um 112.000 íbúa. Yfir borginni gnæfa háir og klettóttir fjallatindar. Funchal er gömul nýlenduborg, lifandi og skemmtileg. Steinlagðar gangstéttir og þröngar götur einkenna bæinn og endurnýjuð gömul hús standa við hlið nýtísku kaffihúsa og glæstra veitingastaða. Hér eru líka fyrirtaks hótel og iðandi fjörugt og margrómað næturlíf. Borgin er nútímaborg með fágað yfirbragð.