Pingdom Check

Kántrí og dansferð til Nashville

Þar sem kántrítónlistin hljómar alls staðar

Fararstjóri er Ninja hjá Línudansskólanum og ferðin er 2. -  7. september 2026. Ferðin er staðfest, lágmarksþátttaka hefur náðst.

Þú þarft ekki að vera vanur dansari til að elska þessa ferð, bara til í nýjar upplifanir, kynnast góðu fólki og smá suðurríkjahita. 

Fyrri hluti  ferðarinnar: Nashville dagana 2. - 4. september

Við byrjum ævintýrið í hjarta Nashville, þar sem kántrítónlistin hljómar alls staðar og ljósaskiltin lýsa upp Broadway í allri sinni dýrð. Við gistum á Tempo by Hilton Nashville downtown hótelinu sem er rétt hjá Honky Tonk Strip, þar sem barir með lifandi tónlist eru á hverju horni og stemningin er einstök. Það er erfitt að lýsa henni með orðum, þú verður einfaldlega að sjá með eigin augum. Á daginn bíða búðirnar en þar fást dásamlegir hattar, kúrekastígvél, belti, sylgjur og allt sem kántríaðdáendur girnast.
Trolley-rútur með leiðsögn eru frábær leið til að sjá það helsta í borginni og í miðbænum má finna glæsileg söfn eins og Country Music Hall of Fame. Ef hitinn segir til sín þá er smá hvíld á hótelinu við sundlaugarsvæðið fullkomin leið til að hlaða aðeins batteríin á milli stunda.
Maturinn er ævintýri út af fyrir sig. „Hot Chicken“ á Hattie’s er nauðsyn en þar fyrir utan er úr nægu að velja eins og rif, mac & cheese, maísbrauð og annað sem suðurríkjamaturinn er þekktur fyrir. Þeir sem vilja prófa eitthvað öðruvísi ættu ekki að sleppa góðum Gumbo.

Seinni hluti ferðarinnar: Nashville Dance Fest dagana 4. - 7. september

Við flytjum við okkur yfir á The Inn at Opryland, A Gaylord Hotel í Music Valley sem er aðeins nokkrum skrefum frá The Nashville Palace, frægasta Honky Tonk staðnum í Nashville. Þar fer Nashville Dance Fest fram og þaðan er einnig stutt í hina frægu Grande Ole Opry tónleikahöll.
Á hátíðinni kemur fólk alls staðar að úr Bandaríkjunum til að skemmta sér saman og læra dans. Innifalið í pakkanum er 3ja daga passi og hér má sjá myndband frá hátíðinni.

Dagskráin er mjög fjölbreytt og allir sem hafa gaman af því að dansa geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem að maður er algjör byrjandi eða vanur dansari. Kennslan er á mismunandi svæðum, bæði í línudansi fyrir einstaklinga, í Kántrí Swing og Two step fyrir pör.
Heimsmeistarakeppnin í Honky Tonk fer einnig fram á Nashville Dance Fest, ásamt keppnum í línudansi og paradönsunum og gaman er að setjast inn í Nashville Palace og kíkja á þær yfir daginn, ef fólk vill taka sér hlé frá dansi, kæla sig í loftkælingunni og fá sér eitthvað kalt á barnum.

Ekki dansari en langar að vera með í partíinu? Þú getur auðveldlega notið ferðarinnar án þess að taka danstíma. Skoðaðu annað á daginn og komdu með á kvöldin á lifandi tónleika, bæði inni á The Nashville Palace og á útisviðinu.

Opry Mills, stærsta verslunarmiðstöð Tennessee, er skammt frá, Madam Toussaud vaxmyndasafnið og Grand Ole Opry tónleikahöllin. Gaylord Opryland Gardens eru einnig rétt hjá. Stærð garðsins eru níu ekrur og inniheldur 50 þúsund tegundir af hitabeltisplöntum, síki renna hringinn í kringum svæðið og bátsferðir eru í boði, fossar, ljósadýrð og góðir veitingastaðir. Það eru fríar rútuferðir frá hótelinu yfir á þessa staði og til baka á 30 mínútna fresti ef fólk vill spara sporin.
Við hliðina á Nashville Dance Fest má einnig finna Scoreboard dive bar sem býður upp á suðurríkjamat, spennandi drykki, lifandi tónlist allan daginn og stórt útisvæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar. Skammt undan eru nokkrar “Second-hand“ búðir.
Fararstjóri í ferðinni er Ninja hjá Línudansskólanum og hægt er að senda henni fyrirspurnir um ferðina á netfangið [email protected].

Sjá myndband frá fararstjóra og nánari ferðatilhögun hér að neðan. 

Athugið:

  • Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim
  • Ferðin er staðfest. Næg þátttaka hefur náðst

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Gisting í fimm nætur

Gisting í tveggja manna herbergi
Án morgunverðar

Rútuferðir

Erlendis
Til og frá flugvelli erlendis og frá hótel Tempo by Hilton á The Inn at Opryland-Gaylord

Miði á viðburð

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Gististaðir

fráISK 269.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu