Orlando, Nassau - Bahamas, George Town - Grand Cayman, Cozumel - Mexíkó
Með hinu glæsilega skemmtiferðaskipi Celebrity Apex
12. nóvember - 22. nóvember
Fararstjóri: Kristjana Lilja Wade
Skemmtileg sigling þar sem siglt verður með glæsilegu skipi CelebrityXCruises: Celebrity Apex í 7 nætur um Karíbahafið. Gist verður á Florida Mall hótelinu í Orlando bæði fyrir og eftir siglingu. Á siglingunni er komið við í Nassau á Bahamas þar sem litríkur karabískur markaður, fallegar strendur og sögulegir staðir bíða. Á Grand Cayman tekur á móti ferðamönnum hvít sandströnd, kristaltært haf og lífleg stemning í miðbænum. Og í Cozumel í Mexíkó bíða falleg kóralrif og fjölbreytt afþreying fyrir bæði sólarunnendur og þá sem vilja kynna sér menningu og sögu landsins. Á milli viðkomustaða er nægur tími til að njóta lífsins um borð – sundlauga, sólbekkja, heilsulindarinnar, góðs matar og drykkja og skemmtilegrar dagskrár.
Celebrity Apex er eitt glæsilegasta skemmtiferðaskip heims og hluti af Edge‑klassanum hjá CelebrityXCruises. Skipið er þekkt fyrir nútímalegt og afslappað andrúmsloft þar sem hönnunin er bæði falleg og notendavæn. Það hentar sérstaklega vel þeim sem vilja fyrsta flokks þjónustu, frábæran mat og notalega stemningu um borð.
Innifalinn í verði ferðar er "Classic" drykkjarpakki: