Pingdom Check

Eurobasket - Tveir leikir 1.- 4. september

Lágmarksþátttaka er 130 manns og verður að nást fyrir 15. júní 

Katowice - beint flug!

Við höfum sett upp beint flug til Katowice í Póllandi til að sjá landslið Íslands í körfubolta mæta sterkt til leiks á Eurobasket.

Pakkaferð í boði 1. - 4. september til að sjá tvo síðustu leiki Íslands sem eru á móti Slóveníu og Frakklandi

Flug og gisting: 189.900 kr. á mann í tvíbýli með morgunverði. Gist er á  Novotel Katowice Centrum****

Innifalið: Flug, gisting í þrjár nætur með morgunverði og rútur til og frá flugvelli í Katowice

Athugið: Miðar á leikina eru ekki innifaldir í pakkaverði

Í bókunarferlinu er í boði að bæta við miðum á leiki Íslands í Katowice 2. september á leikinn gegn Slóveníu og 4. september gegn Frakklandi

Miðarnir eru í "Category II" og verða sendir rafrænt á það netfang sem gefið er upp við bókun

Flugupplýsingar:

1.september Keflavík - Katowice með FI1504 klukkan 18:55, lending í Katowice klukkan 00:45 aðfaranótt 2.september

4.september Katowice - Keflavík með FI1505 klukkan 20:00, lending í Keflavik klukkan 21:50

Mikilvægt:

Viðkomandi ferð er háð lágmarksþátttöku. Lágmarksþátttaka er 130 manns og verður að nást fyrir 15. júní Þeir sem hafa bókað ferðina fyrir þann tíma fá skilaboð um hvort ferðin verði farin eða ekki, allt eftir þátttöku. 

Við hvetjum því áhugasama um að bóka sig sem allra fyrst til að hjálpa til við að ná lágmarksfjölda og forðast aflýsingu.

Verði ferðinni aflýst mun Icelandair endurgreiða  einstaklingum að fullu eins fljótt og auðið er.


Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting með morgunverði

Morgunverður innifalinn

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu