Pingdom Check

Lido di Jesolo og Bibione

Vinsælir strandbæir á norðausturströnd Ítalíu

Lido di Jesolo er sólrík strandarparadís við Adríahafið. 

Þetta vinsæla svæði er á norðausturströnd Ítalíu, í um 50 km akstursfjarlægð frá Feneyjum, og þekkt fyrir langa og gyllta sandströnd sem teygir sig yfir 15 kílómetra. Þarna eru frábær skilyrði fyrir gott sólarfrí, með fjölbreyttri afþreyingu í boði. Á daginn má njóta strandarinnar, leigja hjól og skoða strandgötuna, heimsækja vatnagarðinn Caribe Bay eða fara í bátsferðir til Feneyja. Einnig er spennandi að skoða dýragarðinn og fræðslusafnið Tropicarium Park sem er 3000 m² heimkynni framandi dýrategunda. Þar geta gestir kynnt sér litríkt sjávarlíf ásamt því að skoða meðal annars skjaldbökur eðlur, froska, hákarla og krókódíla.
Á kvöldin lifnar yfir svæðinu og þá er gaman að fara í göngutúr, skoða götumarkaði, finna sér huggulegan stað með lifandi tónlist eða kíkja á næturlífið. Staðirnir bjóða oft upp á þemakvöld, vinsæla plötusnúða og tónlistarviðburði.
Það er gott úrval af verslunum á svæðinu fyrir þau sem vilja koma heim með fallegt góss. Veitingastaðirnir eru allt um kring og margir staðir eru með útiborð þar sem gestir geta notið matarins og ítalskrar gestrisni í sólinni eða undir stjörnubjörtum himni.

Árnar Sile og Piave eru í nágrenninu og auðvelt að komast að þeim á hjóli eða bíl. Þar er hægt að fara í gönguferðir meðfram árbakkanum eða hjóla um og uppgötva umhverfið og náttúruna.

Lido di Jesolo er fullkominn og fjölskylduvænn áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta sólar, sjávar og skemmtunar í afslöppuðu og líflegu umhverfi.

Bibone

Bibione er eitt vinsælasta strandorlofssvæði norðan Adríahafsins, staðsett í fallega Veneto-héraðinu rétt fyrir utan Feneyjar. Bærinn stendur á einstöku landsvæði þar sem Adríahafið, lón, ár og heitar lindir móta fjölbreytta náttúru og skapa bæði fegurð og rólegt umhverfi fyrir ferðamenn. Svæðið er þekkt fyrir mjög hátt umhverfis- og þjónustustig og nýtur árlegrar viðurkenningar Blue Flag fyrir hrein og örugg baðsvæði, auk alþjóðlegra vottana fyrir sjálfbæra umhverfisstjórnun. 

Strönd Bibione er aðalástæðan fyrir því að ferðamenn koma aftur og aftur. Hér er að finna 8–10 kílómetra langa, breiða og gyllta sandströnd. Ströndin hallar mjúklega út í grunnt og lognsælt haf, sem gerir staðinn einstaklega fjölskylduvænan.

Bærinn er umkringdur fallegri náttúru, þar á meðal furuskógum, friðsælum göngu- og hjólaleiðum og náttúrulegum svæðum sem gera Bibione að frábærum stað fyrir bæði slökun og útivist. Hér er fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa – frá rólegum stranddögum og heilsulindum yfir í sjósport, fjölskylduvæn leiksvæði og skemmtilega kvöldstemningu í miðbænum.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Gististaðir

fráISK 176.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu