Pingdom Check

Madonna di Campiglio - Flug út til Verona og heim frá München

Einn af þekktustu skíðabæjum Ítala

Madonna er einn af þekktustu skíðabæjum Ítala


Flogið er með áætlunarflugi til  Verona og til baka frá München. Akstur til og frá flugvelli er í boði gegn aukagjaldi fyrir farþega með flug og gistingu hjá Icelandair VITA. 

Ef næg þátttaka fæst verður fararstjórn í Madonna á vegum Icelandair VITA. 

Athugið að flutningur á skíðabúnaði er ekki innifalinn í verði og þarf að bæta honum við gegn aukagjaldi fyrir þau sem þess óska. Hægt er að bæta við búnaði þegar flugmiðar hafa verið sendir eða síðar. Þetta fyrirkomulag veitir aukinn sveigjanleika við bókun.

Til Madonna flykkist skíðafólk á öllum aldri hvaðanæva að úr heiminum á hverju ári. Bærinn stendur í dalnum Val Rendena í vesturhluta Trentino héraðsins rétt við rætur vestur-Dólómítanna.

Þetta fallega fjallaþorp liggur í rúmlega 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli og eru bæjarbúar um það bil þúsund talsins. Stutt er í skíðalyftur og kláfa úr miðbænum og liggja hæstu brekkurnar upp í allt að 2.600 metra hæð. Skíðabrekkurnar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum.Í miðbænum mynda hótelin umgjörð um tvö torg, en það er skemmtilegt göngusvæði, með fjölda veitingastaða og verslana.

Fjallasvæðið

Fjallasvæðið skiptist í fjögur mismunandi skíðasvæði sem hægt er að skíða á milli og getur fólk valið um svartar, rauðar eða bláar brekkur, allt eftir getu hvers og eins. Svæðin Pradalago og Grosté eru auðveldust á meðan svæðin Spinale og 5 Laghi fela í sér meiri áskoranir og ögranir.

Skíðasvæðið

Skíðasvæðið er gríðarstórt, samtals um 150 km af skíðabrautum. Lengsta einstaka skíðabrautin telur heila fimm kílómetra. Lyftur eru 59 talsins og flestar eru þær opnar frá kl. 8.30 til 16.30 alla daga.Boðið er upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa. Hægt er að skíða frá Madonna yfir í þrjá nærliggjandi smærri skíðabæi, Folgarida, Marilleva og Pinzolo. Fyrrihluta dags og fram yfir miðjan dag er lífið í skíðabrekkunum en eftir að miðdegishvíldinni eða „síestunni“ lýkur og fram á kvöld færist líf í bæinn sjálfan. Miðbærinn er afar heillandi og gefa fjöldi skemmtilegra kaffihúsa og fjölbreyttra verslana honum skemmtilegan blæ.

 

 

 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Gististaðir

fráISK 224.000 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu