Pingdom Check

Madrid

Borg menningar og lista

Í Madrid upplifirðu einstaka blöndu af sögu, menningu, listum og líflegu borgarlífi. Heillandi höfuðborg í hjarta Spánar þar sem fallegar breiðgötur, glæsileg torg og notaleg kaffihús skapa ógleymanlegt andrúmsloft.

Í borginni er að finna mörg af þekktustu kennileitum landsins, þar á meðal hin glæsilegu torg Plaza Mayor, Plaza de Cibeles og Puerta del Sol, þar sem heimamenn og gestir njóta mannlífsins frá morgni til kvölds. Fjölbreytt úrval verslana, allt frá litlum sérverslunum til stórra verslunarkjarna, gerir Madrid að sannkölluðum draumaáfangastað fyrir verslunarglaða ferðalanga.

Á hinum fræga markaði El Rastro er líf og fjör um helgar, þar sem finna má allt frá antíkmunum og safngripum til fatnaðar og handverks. Í hinu sjarmerandi La Latina hverfi bíða svo ótal tapasbarir þar sem hægt er að upplifa spænska matarmenningu eins og hún gerist best. Láttu ekki klassíska rétti á borð við tortilla de patatas, croquetas og patatas bravas framhjá þér fara, en þeir eru meðal vinsælustu tapasrétta Spánar.

Madríd er einnig frábær borg til að skoða gangandi eða á hjóli. Almenningssamgöngur eru einfaldar og skilvirkar og því auðvelt að komast á milli helstu kennileita og upplifa sem mest af því sem borgin hefur upp á að bjóða.

Hvort sem áhuginn liggur í listum, matargerð, verslun eða einfaldlega því að njóta hins einstaklega spænska lífstíls, þá er Madríd borg sem heillar gesti sína aftur og aftur, með hlýlegri stemningu og sannkallaðri spænskri lífsgleði á hverju götuhorni.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum, háð framboði

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Gististaðir

fráISK 95.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu