Pingdom Check

Malaga borg

Söguleg og sólrík við Miðjarðarhafið

Malaga er lífleg hafnarborg á suðurströnd Spánar og höfuðstaður Costa del Sol svæðisins. Hún er næststærsta borg Spánar og sameinar suðræna stemningu við ríka sögu og menningu. Borgin þekkist á gullinni sandströnd og háreistum hótelum, en í sitthvorum enda borgarinnar má sjá fornar byggingar sem áður voru hluti af varnargarði hennar. Á öðrum endanum stendur Gibralfaro kastali með útsýni yfir borgina og höfnina, og á hinum endanum trónir Alcazaba höllin en hlutar hennar voru reistir á 11. öld.

Höfnin Muelle Uno er lífleg og skemmtileg að rölta um – þar er gaman að virða fyrir sér snekkjurnar, njóta mannlífsins og fá sér góða máltíð með útsýni yfir sjóinn. Rétt hjá Muelle Uno er ströndin í Malaga.

Göngugötur borgarinnar eru fullar af lífi og lit. Þar má einnig finna fjölmörg söfn, kirkjur, sögu- og menningarminjar. Ein þekktasta göngugatan er Calle Larius en þar má finna fjöldan allan af verslunum, veitingastöðum o.fl.

Listamaðurinn Pablo Picasso fæddist í Malaga árið 1881 og hans er minnst með ýmsum hætti í borginni. Picasso Malaga-safnið var opnað árið 2003 eftir langa bið og þar er að finna glæsileg verk. Einnig er hægt að skoða húsið þar sem hann fæddist og bjó í þegar hann átti heima í Malaga.

Tapasmenningin er órjúfanlegur hluti af matarupplifun í Malaga - hvort sem sest er á litla staði í gamla bænum eða við sjávarsíðuna.

Málaga hentar jafnt fyrir menningarferð, sólardaga og notalega borgarupplifun en þar er svo sannarlega hægt að versla og má finna allar þær helstu verslanir.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 150.000 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu