Borgarferðir til Manchester bjóða upp á fjölbreytta möguleika til upplifunar, afþreyingar og skemmtunar. Borgin er lífleg og í miðbænum er fjöldinn allur af verslunum, veitingastöðum, kaffihúsum og börum. Verslunargatan Market Street býður upp á allar helstu verslanir og verslunarmiðstöðvarnar Arndale og Trafford Centre eru með fjölbreytt úrval.
Það er sérstaklega skemmtilegt að heimsækja Spinningfields hverfið og einnig eru mörg notaleg útisvæði í og við miðborgina þar sem hægt er að njóta matar og drykkjar í afslöppuðu umhverfi, ekki síst þegar veðrið leikur við gesti.
Fótboltinn setur að sjálfsögðu sterkan svip á borgina, enda eru Manchester United og Manchester City heimalið borgarinnar.
Auk þess er Manchester þekkt fyrir spennandi tónlistarsenu, leikhús og listasýningar. Borgin hefur upp á eitthvað að bjóða fyrir alla, hvort sem áherslan er á verslun, menningu, íþróttir eða skemmtilegt borgarlíf.