Pingdom Check

Miðjarðarhafssigling - Á milli heimsálfa

Spánn, Portúgal og Marokkó með Celebrity Equinox

19. maí - 29. maí, 10 nætur, 9 nætur á siglingu

Barcelona - Cadiz - Lissabon - Porto - Tangier Marokkó - Barcelona

Komdu með í einstaka siglingu um suðvesturhluta Evrópu og Norður-Afríku þar sem glæsileg borgarlíf, heillandi menning og afslappaðir dagar á hafi úti fara saman á besta mögulega hátt.

Ferðin hefst með flugi til Barcelona, þar sem gist verður í eina nótt á Hotel Acta Voraport, áður en farið er um borð í hið vinsæla skemmtiferðaskip Celebrity Equinox. Framundan er níu nátta sigling um nokkra af áhugaverðustu áfangastöðum Spánar, Portúgals og Marokkó.

Frá Barcelona liggur leiðin til Cádiz á suðurströnd Spánar, hinnar sögufrægu hafnarborgar sem er hlið að Andalúsíu og Sevilla. Þaðan er siglt til Lissabon, þar sem skipið dvelur í tvo daga og gefst því góður tími til að njóta þessarar fallegu og líflegu höfuðborgar Portúgals. Næst tekur við heimsókn til Porto, sem heillar gesti með litríkri miðborg, fallegum árbökkum og afslappaðri stemningu.

Eftir dag á sjó er komið til Tangier í Marokkó, þar sem framandi menning, iðandi markaðir og afrísk áhrif skapa einstaka upplifun. Síðustu dagarnir um borð gefa tækifæri til að njóta alls þess sem Celebrity Equinox hefur upp á að bjóða, allt frá glæsilegum veitingastöðum og sýningum til afslöppunar við sundlaugina. Siglingunni líkur í Barcelona og þaðan er flogið heim sama dag.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum, háð framboði

Gisting í eina nótt

Gisting í tveggja manna herbergi
Morgunverður innifalinn

Sigling með Celebrity Cruises

Fæði: Allt innifalið
Drykkjarpakki "Classic package"

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Gististaðir

fráISK 549.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu