Mílanó heillar með sínum sérstaka sjarma þar sem saga, tíska og lífsgleði renna saman í eina heild. Í miðborginni rís hinn tignarlega dómkirkja, Duomo di Milano, og í kringum hana iðar mannlífið á kaffihúsum, torgum og verslunargötum. Borgin er þekkt fyrir stíl og glæsileika, en um leið er hún hlýleg og lifandi – full af litlum augnablikum sem gera ferðina einstaka. Í rólegu klaustri rétt utan við miðbæinn leynist eitt þekktasta listaverk heims, Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci, sem dregur til sín gesti hvaðanæva úr heiminum. Söfn, gallerí og leikhús fylla borgina lífi, og á hverjum degi má upplifa nýja hlið á menningu hennar – hvort sem það er klassísk tónlist, nútímaleg list eða spennandi sýningar. Borgin er ein af höfuðborgum tísku heimsins og alls staðar má finna verslanir, allt frá hátísku og yfir í lítlar notalegar verslanir með handverki.
Á daginn má njóta lista, arkitektúrs og ítalskrar matargerðar, en þegar kvölda tekur fyllist borgin af lífi þar sem heimamenn safnast saman yfir aperitivo og ítalskri matargerð. Mílanó er ekki aðeins áfangastaður heldur upplifun – borg sem kveikir forvitni og lætur engan ósnortinn.