Pingdom Check

Narsaq á Grænlandi

Flug og gisting

Pakkaferðir til Narsaq á Suður Grænlandi. Flogið er frá Keflavík til Qaqortoq sem er nýr flugvöllur sem var opnaður í apríl 2026. 

Farþegar fara með bát til Narsaq þar sem gist er á hótel Narsaq.

 

Narsaq er litríkur bær umkringdur stórbrotnu fjallalandslagi, ísjökum og kyrrlátum fjörðum á Suður-Grænland.

Í Narsaq er einstakt tækifæri til að upplifa grænlenska náttúru í sinni tærustu mynd, þar sem gönguleiðir, ísjakaferðir og hlý gestrisni heimamanna skapa ógleymanlega ferð.

 

Við viljum vekja athygli á því að tafir vegna veðurs geta komið upp hvar sem er á Grænlandi, allt árið um kring. Það er því mikilvægt að vera vel undirbúinn og hafa í huga að slíkar aðstæður geta haft áhrif á ferðaplön. Þó að Icelandair beri ekki ábyrgð á breytingum sem stafa af veðurskilyrðum, þá eru bæði Grænlendingar og Icelandair reynd í að takast á við slíkar tafir og tilbúin til að aðstoða ef þær koma upp.

 

  • Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim
  • Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.

Innifalið í pakkanum

Flug Grænland

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Sætaval
Vildarpunktar og Fríðindastig

Gisting

Gisting í tveggja manna herbergi
Morgunverður innifalinn

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 179.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu