Nashville – Memphis – Suður með Mississippi – New Orleans – Montgomery - Nashville
Fararstjóri: Stefán Á Guðmundsson
23.apríl - 5.maí. 12 nætur
Hámark 25 manns.
Í þessari ferð verður haldið til Suðurríkja Bandaríkjanna, hið djúpa suður - the Deep South. Helstu borgir fylkjanna Tennessee, Mississippi, Louisiana og Alabama verða heimsótt, en einnig tökum við hús á sjarmerandi smábæjum. Svæðið hefur mótast af flókinni og oft sársaukafullri sögu sem tengist plantekrubúskap, þrælahaldi, borgarastríði og réttindabaráttu minnihlutahópa. En þessi arfleið hefur líka gefið af sér ríkulega til heimsmenningar í formi ýmissa listgreina.
Menning og list hins djúpa suðurs er afar fjölbreytt, sérstaklega þegar kemur að tónlist, matargerð og jafnvel trúarlífi. Ýmsar borgir og smábæir sem heimsóttir verða í þessari ferð, hafa gegnt lykilhlutverki í þróun bandarískrar tónlistar. Nashville er vagga kántrítónlistar og heimaborg listamanna á borð við Johnny Cash og Dolly Parton; Memphis er og verður alltaf tengd Elvis Presley; upphafsstaði blúsins með tónlistarisum á borð við B.B. King er að finna í smábæjum og á bómullarekrum við Mississippi-fljótið; og New Orleans sem jafnan er kölluð fæðingarstaður djassins og hefur alið af sér fjölda áhrifamikilla tónlistarmanna, þar á meðal Louis Armstrong.
Matarmenning suðursins – Southern Comfort Food - er fyrir löngu þekkt út um allan heim; jambalaya, gumbo, djúpsteiktur kjúklingur og cornbread svo eitthvað sé nefnt. Svæðið hefur einnig lagt ríkulega til heimsbókmennta, með rithöfunda á borð við William Faulkner, Tennessee Williams og Mark Twain með hið þekkta verk sitt: Ævintýri Stikilsberja-Finns. Þrátt fyrir dökka fortíð er hið djúpa suður einnig þekkt fyrir frábæra gestrisni, rólegri lífsstíl og lifandi hefðir á borð við Mardi-Gras kjötkveðjuhátiðina.
Ferðin byrjar í Nashville og verður gist þar í þrjár nætur í návígi við kántrítónlist og kúrekastígvél. Svo verður haldið í vestur til Memphis og heimkynni rokkkóngsins skoðuð ásamt frábæru mannréttindasafni á þeim stað sem Martin Luther King Jr. var myrtur. Eftir tvær nætur í borg Elvis, höldum við suður til Mississippi þar sem stoppað verður á blús-slóðum í Clarksdale og Indianola. Eftir næturgistingu í Vicksburg verður komið við á gamalli bómullarplantekru í Frogmore og tekið skref aftur í hörmungarsögu þrælahaldsins, áður en haldið verður til New Orleans þar sem gist verður í fjórar nætur. Í þessari stórkostlegu borg siglum við m.a. á Mississippi-ánni, skoðum Franska hverfið og njótum tónlistar sem þar er í boði. Haldið verður svo aftur áleiðis norður með viðkomu í smábæjum við Mexíkóflóa áður en gist er í Montgomery. Þaðan er svo keyrt lengra norður til Nashville að nýju með viðkomu í drykk hjá Jack Daniels.
Innifalið:
Hægt er að skoða ferðatilhögun, flugupplýsingar og hótelin sem gist verður á hérna fyrir neðan.