BEF Hive fer í Universal Studios - Hlaðvarpið Betri en flestir leggur land undir fót með hlustendum
Nú er komið að því að BEF Hive-ið ferðist saman út fyrir landsteinana. Í febrúar heldur hópurinn til Orlando þar sem við ætlum að njóta nokkurra daga saman í Orlando sem hefur verið rædd í þaula í poddinu.
Aðaláherslan verður á Universal Studios, þar sem við förum saman í hópferð um garðana. Kjartan Atli, margfaldur ársmiðahafi og sjálfskipaður Universal-sérfræðingur, mun leiða hópinn og miðla af reynslu sinni af þessu mikla undralandi.
En Universal er bara hluti af því sem Orlando hefur upp á að bjóða. Þar eru reglulega stórir íþróttaviðburðir, veitingastaðir af öllu tagi, verslanir, skemmtigarðar, næturlíf og alls kyns afþreying fyrir Uncs og Uncettur.
Við ætlum að hittast í skipulögðum BEF-hittingi, fara saman út að borða, drekka í okkur menninguna á svæðinu og auðvitað láta nokkra kalda ráðast á okkur.
Einfalt plan: Njóta Orlando og sjá hvað gerist.
Dóri DNA verður með augun opin fyrir rétta cigar lounge-inu, Danni Deluxe sér um að finna réttu tónana og hver veit nema íþróttaviðburður eða annað spennandi detti inn.
Ógleymanleg ferð er framundan 25. febrúar til 1. mars. Lending í Keflavík að morgni 2. mars.
Lágmarksþátttaka er 20 manns sem þarf að nást fyrir 27. nóvember til að ferð verði farin.
Farþegar bóka sjálfir í Universal Studios. Aðgangspassi í skemmtigarðinn er ekki innifalinn í verðinu.
Gist er á: Sonesta ES Suites Orlando – International Drive:
Rúmgóðar og þægilegar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum, setustofu (svefnsófi) og fullbúnu eldhúsi með ísskáp, helluborði, örbylgjuofni og uppþvottavél. Einnig er að finna svefnsófa, borðkrók, vinnuaðstöðu og ókeypis nettengingu. Morgunverði í boði gegn gjaldi á gististaðnum.
Tvíbýli og Þríbýli: Íbúð með tveimur svefnherbergjum og svefnsófa í stofu. Svefnherbergi 1: Stórt hjónarúm (king). Svefnherbergi 2: Minna hjónarúm (queen). Stofa: Svefnsófi.
Fjórbýli: Íbúð með tveimur svefnherbergjum og svefnsófa í stofu. Svefnherbergi 1: Stórt hjónarúm (king). Svefnherbergi 2: Tvö minni hjónarúm (queen). Stofa: Svefnsófi.