Pingdom Check

Perlur Atlantshafsins - Madeira og Kanaríeyjar

Kanaríeyjar og Madeira

Sigling með MSC Fantasia

5. mars - 14. mars 2027

Tenerife - Fuerteventura - Madeira - Lanzarote - Gran Canaria - La Palma

Fararstjóri: Lilja Jónsdóttir

Flogið er í morgunflugi til Tenerife þar sem gist verður í 2 nætur á INNSiDE by Melia. Þann 7. mars verður siglt af stað með MSC Fantasia til Fuerteventura, eftir það Madeira og svo hver Kanaríeyjan á fætur annarri: Lanzarote, Gran Canaria og La Palma. Að lokum verður siglt aftur til Santa Cruz á Tenerife og flogið heim sama dag.

MSC Fantasia er í svokölluðum Fantasia-flokki MSC Cruises og var sjósett árið 2008. Skipið er með 18 þilför og rúmar um 3200-3900 farþega í 1600 klefum.
Á skipinu er að finna afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Þar eru meðal annars 5 sundlaugar og heitir pottar, sólbaðsaðstaða, úrval veitingastaða og bara, spa og líkamsrækt, kvikmyndahús, næturklúbbar og glæsilegt leikhús sem býður upp á fjölbreytta skemmtidagskrá á hverju kvöldi.

 

Innifalinn er "Premium extra" drykkjarpakki sem inniheldur eftirfarandi: 

  • Kaffi, te og ýmsa heita drykki
  • Gosdrykki og orkudrykki
  • Safa, ferska ávaxtakokteila, smoothie og próteindrykki
  • Kolsýrt og ókolsýrt vatn – AQUA frá MSC**
  • Áfengislausa bjóra, vín og kokteila
  • Fjölbreytt úrval af krana- og flöskubjórum
  • Úrvals af víni og freyðivíni í glösum
  • Sterkt vín og líkjöra
  • Kokteila og blandaða drykki úr hágæðamerkjum

Auk þess færðu sérstakan afslátt af úrvals vínum og kampavíni í flöskum.

Þjórfé fyrir drykki er innifalið.
Gestir geta notið allt að 15 áfengra drykkja á dag.

Pakkinn er í boði á völdum börum, hlaðborðum, aðalveitingastöðum og sérveitingastöðum.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Sigling, hótel og ferðir skv. ferðalýsingu

Í ferðalýsingu kemur fram allt sem innifalið er í ferðinni.

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 379.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu