Sumarhús Lalandia í Rødby í Danmörku. Pakkaferðir í boði allt árið.
Flogið er til og frá Kaupmannahöfn, farþegar koma sér sjálfir til og frá Rødby. Það tekur u.þ.b. 1 1/2 - 2 klukkustundir að keyra til Rødby.
Lalandia Rødby er frábært val fyrir fjölskylduna í fallegu umhverfi á Lollandsströndinni, 2,5 km frá miðbæ Rødbyhavn. Rødby-ströndin er í 800 metra fjarlægð frá dvalarstaðnum
Í húsunum er góð aðstaða og umhverfið býður upp á skemmtun fyrir börn og fullorðna.
Ferðirnar miðast við brottfarir frá Keflavík til Kaupmannahafnar og sumarhúsin eru í Lalandia Rødby. Farþegar koma sér sjálfir til og frá flugvelli í Kaupmannahöfn. Hér er hægt að bóka bílaleigubíl.
- Innifalið er frír aðgangur að vatsnrennibrautarsvæðinu Aquadome og Monky Tonky Playland.
- Húsið er afhent á komudegi kl. 15.00. Gestir fá úthlutað hús og kóða sem gildir að svæðinu og húsinu. Skila því af sér kl. 10.00 á brottfarardegi.
- Hægt er að leigja sængurver sem greitt er á staðnum. Rafmagn og hiti fyrir húsin greiðast aukalega á staðnum. Eitt til tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús, fer eftir stærð húsa. Frítt í klukkutíma í bílastæði við Lalandia Centre. Frekari upplýsingar er að finna hér.
- Sjá mynd af svæðinu
- Ekki er hægt að leigja sængurver á vefsíðunni þeirra, þar sem krafist er þeirra bókunarnúmer.
- Leiga á rúmfötum fer fram í þjónustumiðstöðinni við komu
- Hagnýtar upplýsingar um Lalandia - Rødby
Þeir farþegar sem koma eftir klukkan 21:00 eða fyrir utan opnunartíma og búið er að loka Lalandia Centre þar sem innritun fer fram, þá er hægt að hafa samband við þjónustuvörðinn á svæðinu í síma sem er gefinn upp við innganginn.
- Saga Club félagar geta nú notað hvaða upphæð sem er af Vildarpunktum þegar kemur að því að greiða fyrir pakkaferðir. Það eru engin takmörk á upphæð þeirra punkta sem notaðir eru þegar kemur að því að bóka allan pakkann út í heim
- Athugið að verð frá er miðað við þrjár nætur og sætaframboð er takmarkað. Uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.